fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sjómannafélagið lætur Írisi heyra það – „Er að skjóta sér undan ábyrgð svo eftir er tekið“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 15. júlí 2020 17:00

Íris Róbertsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Garðarsson formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands sendi frá sér yfirlýsingu fyrir skömmu, fyrir hönd Sjómannafélags Íslands.

Í yfirlýsingunni er því haldið fram að bæjaryfirvöld Í Vestmannaeyjum hafi brotið lög um vinnureglur vegna verkfalsmáls Herjólfs, og að þau beri fulla ábyrgð á málinu.

Þá er ríkisstjórnin hvött til að grípa inn í „lögleysu bæjaryfirvalda í Eyjum“. Og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri gagnrýnd fyrir að forðast málið.

Yfirlýsinguna má les í heild sinni hér að neðan.

„Gamli Herjólfur mannaður verkfallsbrjótum sigldi út úr Vestmannaeyjahöfn til Landeyjarhafnar upp úr hádegi. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa þar með brotið grunnréttindi launafólks; lög um vinnudeilur og gegn dómi Félagsdóms í liðinni viku. Útgerð Herjólfs ohf. sem er í eigu Vestmannaeyjabæjar notar eigur ríkisins til þess að beita launafólk lögleysu og ofríki.

Bæjaryfirvöld í Eyjum beita þernur og háseta fádæma ofríki og viðhafa vinnubrögð sem hafa ekki þekkst frá í Kreppunni miklu og setningu laga árið 1938 um vinnustöðvanir. Þar segir í 18. grein: „Þegar vinnustöðvun hefur verið löglega hafin, er þeim, sem hún að einhverju leyti beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa.

Frá setningu laganna hefur ekki hefur verið ágreiningur um rétt launafólks til vinnustöðvana, eða í 82 ár. Nú hefur opinbert hlutafélag brotið grundvallarreglu á vinnumarkaði. Bæjarútgerðin í Eyjum brýtur grunnréttindi launafólks og notar til þess eigur ríkisins. Alvarlegra getur málið ekki verið. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hlýtur að stöðva lögleysu bæjaryfirvalda í Eyjum.

Fyrir níu dögum dæmdi Félagsdómur verkfall Sjómannafélags Íslands löglegt. Dómurinn dæmdi að bæjarútgerð Vestmannaeyja bæri að gera kjarasamning við fólkið um borð í Herjólfi. Það er rétt að upplýsa að vinnuskylda háseta og þerna sem annarra skipverja um borð í Herjólfi er frá hálfsjö að morgni fram yfir miðnætti til klukkan hálftvö. Vinnutími fólksins er að 2/3 utan dagvinnutíma. Fólkinu er gert að vinna þrjár helgar í mánuði og alla hátíðisdaga. Bæjaryfirvöld í Eyjum neita að fylgja fordæmi Eimskips og Samskips og fjölga þernum úr 3 í 5 yfir hásumarið vegna álags.

Þegar vélstjóri gekk í land og brottför tafðist, fór venslamaður bæjarfulltrúa í plássið og innsiglaði og innmúraði aðild bæjaryfirvalda að lögleysunni. Framkvæmdastjóri útgerðarfélags bæjarstjórnar segir að gamla Herjólfi hafi seinkað þar sem skipið hafi legið lengi við bryggju og sigli þar sem nýi Herjólfur fari senn í skoðun. Sannleiksunnandi í stól framkvæmdastjóra, eða hvað finnst lesanda? Sonur framkvæmdastjórans er meðal verkfallsbrjóta. Auðvitað gildir einu hvort nýi eða gamli Herjólfur sigli, lögbrotið er hið sama. Siglingamálastofnun hlýtur að ganga úr skugga um hvort alls öryggis um borð sé fullnægt.

Bæjaryfirvöld bera fulla ábyrgð ofríkinu í Eyjum. Íris Róbertsdóttir bæjarstýra segir að deilan sé ekki á hennar borði. Bæjarstýra er að skjóta sér undan ábyrgð svo eftir er tekið. Íris heldur á eina hlutabréfinu í Bæjarútgerðinni sem rekur Herjólf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki