fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Íslandsstofa býður útlendingum að öskra á Íslandi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 15. júlí 2020 09:50

Mynd: Íslandsstofa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandsstofa hefur, í gegnum átakið Inspired by Iceland, hrundið af stað sérstæðu markaðsátaki sem felst í því að bjóða fólki út um allan heim að láta öskur sitt hljóma um Ísland og losa þannig um streitu.

Öskrin munu hljóma í gegnum hátalara sem settir verða upp í Viðey, við Festarfjall í Grindavík, í nágrenni við Skógafoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum.

Fréttatilkynning Íslandsstofu um málið er eftirfarandi:

 

„Bjóða útlendingum að losa um streitu á Íslandi

Inspired by Iceland býður fólki um allan heim að losa um uppsafnaða streitu vegna Covid-19 með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Hátölurum hefur verið komið fyrir víðs vegar um landið en hægt er að taka öskrin upp með aðstoð tölvu eða síma á vefsíðunni www.lookslikeyouneediceland.com næstu tvær vikur.

 

Það verða sjö hátalarar sem koma öskrunum til skila á Íslandi og getur fólk valið um staðsetningu. Hátalararnir eru staðsettir í Viðey í Reykjavík, Festarfjall við Grindavík, í nágrenni Skógarfoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum. Notendur fá svo að lokum myndbandsupptöku af því þegar öskrið þeirra „glymur“ á Íslandi. Íslendingar þurfa þó ekki að óttast að gremjuöskur útlendinga skemmi sumarfrí þeirra þar sem hljóðstyrknum er stillt í hóf.

Herferðin sem hefur hlotið nafnið „Let It Out“ eða „Losaðu þig við það“ sækir innblástur til kenninga sálfræðinga um streitulosandi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum. Í könnun sem framkvæmd var á erlendum mörkuðum fyrir Inspired by Iceland í byrjun júní sögðust 40% aðspurðra finna fyrir streitueinkennum vegna Covid-19, og 37% svöruðu að ástandið hefði haft neikvæð áhrif á sálartetrið. Langvinn innivera, einsemd, endalausir fjarfundir og röskun á daglegu lífi hefur aukið streitu fólks m.a. takmarkanir á ferðalögum milli landa. Herferðinni er ætlað að draga fram kosti Íslands sem áfangastaðar.

Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu: „Við viljum vekja athygli tilvonandi ferðamanna á að það er tiltölulega öruggt að ferðast til Íslands og að hér er hægt að upplifa fallega náttúru í fámenni, en það er eitthvað sem við teljum að fólk muni sækjast eftir þegar áhugi fólks á að ferðast eykst á ný.

„Það er mikilvægt að vekja athygli á kostum Íslands núna. Fólk er að láta sig dreyma um þá tíma þegar það verður hægt að ferðast aftur og jafnvel leggja á ráðin um ferðalög í náinni framtíð. Við viljum vera hluti af því samtali. Streitulosun er viðeigandi við þessar kringumstæður en gefur okkur jafnframt tækifæri á sama tíma til að sýna landið og minna á kosti Íslands.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra: „Það er spennandi að geta boðið fólki að upplifa Ísland með þessum hætti. Ég held að við þurfum öll að losa um streitu eftir undanfarna mánuði, og Ísland hefur allt til að bjóða fyrir fólk sem þarf á endurnærandi upplifun að halda. Hvort sem það er stafræn heimsókn til að losa um streitu eða raunveruleg heimsókn í afslappað frí.“

 Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ísland – saman í sókn, sem heyrir undir efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19 og er fjármagnað af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Um er að ræða markaðs- og kynningarverkefni fyrir áfangastaðinn Ísland á völdum erlendum mörkuðum í því skyni að styrkja ímynd Íslands, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu. Framvkæmd verkefnisins er í höndum Íslandsstofu, og aðgerðir á vegum verkefnisins fara fram undir merkjum Inspired by Iceland sem er vörumerki íslenskrar ferðaþjónustu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi