Samkvæmt nýjustu upplýsingunum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og landlækni í gegnum síðuna covid.is eru staðfest smit hérlendis orðin 1417 talsins.
Af veikum er helst að frétt að 1017 manns eru í einangrun, 45 liggja inn á sjúkrahúsi og 12 manns eru á gjörgæslu.
Góðu tíðindin eru þó þau að í dag teljast 396 einstaklingar hafa náð bata og alls hafa 11.679 manns lokið sóttkví.
Í dag sæta ríflega fimm þúsund einstaklingar sóttkví og hafa rúmlega 23 þúsund sýni verið tekin.
Í gær greindust 53 með COVID-19 sem eru svipaðar tölur frá deginum áður er 45 greindust. Fyrr í vikunni greindi sóttvarnarlæknir frá því að færri greiningar á sólarhring gætu bent til þess að faraldurinn væri að fara í rénun, en hins vegar þurfti hann að draga þau orð til baka daginn eftir þegar greindum tilvikum fjölgaði mikið.