fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Viðurstyggileg hegðun drengja í Krónunni í ljósi COVID-19 – Ögruðu fólki með hósta, slefi og öðrum sóðaskap

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 31. mars 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Korungir drengir, 12-13 ára, eru sakaðir um að hafa verið með afar ógeðfelld dólgslæti í Krónunni á Granda í gær, að virðist til að hæðast að ótta fólks við COVID-19 veiruna og svívirða þær umgengnisreglur sem settar hafa verið í almannarými vegna veirunnar.

Fréttablaðið greinir frá þessu en drengirnir eru sagðir hafa hóstað að fólki, borað í nef sér og einn stakk upp í sig putta og strauk honum síðan eftir vörum í hillu.

Drengirnir eru sagðir hafa svarað tilmælum um að láta af þessari hegðun með hortugheitum.

„Sá stærsti í hópnum gekk aftan að fólki, stoppaði eins nálægt því og hann komst og púaði svo eða hóstaði á það. Á meðan tók annar allt saman upp á síma,“ segir kona sem var á staðnum við innkaup í samtali við Fréttablaðið.

Samkvæmt fréttinni var málið tilkynnt til lögreglu en framferði drengjanna náðist á upptökur eftirlitsmyndavéla í versluninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“