fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Snákaolía á tímum COVID-19 – Ekki láta plata þig

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 28. mars 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sífellt greinast fleiri með COVID-19 sjúkdóminn sem nýja kórónuveiran veldur og eru margir uggandi yfir stöðunni. Heilsugæslan og DeCode, sem prófa fyrir veirunni, hafa ekki undan við að taka sýni og margir sem sitja eftir í óvissu um heilbrigði sitt. Því þarf ekki að undra að margar sögur hafi komist á kreik um hvernig sé hægt að fyrirbyggja smit eða kæfa sjúkdóminn í fæðingu, án aðkomu heilbrigðisyfirvalda. Vörumst snákaolíusölumenn og tökum upplýsingum af netinu með fyrirvara.

Lýsi

Lýsi læknar ekki COVID-19. Nokkuð hefur verið rætt um það hérlendis undanfarið að lýsi geti dregið úr smithættu. Kynnt hefur verið til sögunnar ný vara, nýtt lýsi sem á að nýta fríar fitusýrur sem eyðileggja hjúpaðar veirur og mun varan koma á markað á næstu dögum. Lýsi getur vissulega verið hollt og gott, og það vita margir Íslendingar vel. En jafnvel þótt eitthvað geti verið til í því að það dragi úr smithættu þá mun það ekki lækna neinn að þamba lýsi í óhófi umfram ráðleggingar frá læknum og framleiðanda. Eins er ekki hægt að afsaka það að yfirgefa sóttkví þvert gegn læknisráði með þeirri staðhæfingu að viðkomandi taki lýsi.

Klór

Klór drepur ekki vírus sem hefur þegar komist inn í líkama þinn. Svo það þýðir ekkert að úða klór yfir líkama þinn til að koma í veg fyrir smit. Þetta getur gert meira illt en gott þar sem klór getur eyðilagt föt, slímhúð og valdið skaða komist hann í augu eða munn svo dæmi séu tekin. Klór getur þó verið gagnlegur við að sótthreinsa yfirborð, en notist þá samkvæmt leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda og/eða framleiðanda.

Chloroquine 

Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir um daginn að efnið chloroquine gæti mögulega verið lausnin á kórónuveirufaraldrinum. Efnið hefur verið samþykkt af bandarísku lyfjastofnuninni til meðferðar á malaríu, liðagigt og rauðum hundum, en ekki hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að það virki gegn kórónuveirunni. Hjón á sjötugsaldri könnuðust við nafnið á efninu. Þau áttu skylt efni, chloroquine phosphate, á heimili sínu og höfðu notað það við þrif og meðferð á fiskum og fiskabúri. Þau innbyrtu efnið til að reyna að verja sig fyrir smiti. Þau veiktust bæði alvarlega eftir inntöku og lét maðurinn lífið á sjúkrahúsi í kjölfarið.

Andlitsgrímur

Samkvæmt upplýsingum frá landlækni þá nýtast grímur best þegar veikir einstaklingar nota þær til að hindra dreifingu dropa og eins þegar náið samneyti er óhjákvæmilegt. Einstaklingar með flensueinkenni geta notað grímu til að lágmarka líkur á að smita aðra. Grímur koma ekki í staðinn fyrir handhreinsun og eða spritt og heilbrigðir hafa ekki þörf til að nota slíkar nema þeir séu að sinna umönnun fólks sem er hugsanlega með COVID-19 sýkingu. Andlitsgrímur seljast nú eins og heitar lummur og hafa margir seljendur gripið tækifærið og boðið slíkar grímur falar, þó gegn töluverðu gjaldi.

Einnota hanskar

Einnota hanskar geta veitt okkur falskt öryggi og komið í veg fyrir að við hugum nægilega vel að handþvotti. Líta ber á alla hanska sem óhreina og ef þeir eru notaðir við störf þá þarf að skipta um þá á milli verka. Til að mynda ef afgreiðslumanneskja notar slíka á kassa í matvöruverslun þá ætti að skipta um þá fyrir hverja afgreiðslu og henda þeim gömlu. Latex-hanskar geta þar að auki valdið ofnæmi hjá viðskiptavinum. Hugsaðu dæmið til enda. Þú setur á þig hanska þegar þú kemur inn í Bónus, þú snertir smitaðan hlut.

Skola nefið með saltvatni

Þetta ráð hefur komist á flug í faraldrinum en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin bendir á að engar rannsóknir styðji slíkar fullyrðingar. Rannsóknir hafa sýnt fram á að slík nefskolun geti þó í sumum tilvikum aðstoðað fólk við að ná sér hraðar eftir kvefpestir, en kemur ekki í veg fyrir öndunarfærasjúkdóma á borð við COVID-19. Svo skolaðu endilega á þér nefið ef það er stíflað, en ekki halda að þar með sértu búinn að ná þér af kórónuveirunni eða fyrirbyggja smit.

Sýklalyf

Sýklalyf virka gegn bakteríum, ekki veirum. Kórónuveiran er vírus og því gera sýklalyf ekkert gagn gegn henni. Sjúklingar sem leggjast inn á sjúkrahús vegna COVID-19 fá þó gefin sýklalyf, en aðeins til að koma í veg fyrir að þeir smitist samhliða af bakteríusýkingum.

Hvítlaukur

Hvítlaukur er hollur og er talinn hafa vissa eiginleika sem gagnast gegn örverum Hins vegar eru engar sannanir fyrir því að hvítlauksát verndi fólk gegn COVID-19.

Heitt bað

Að fara í heitt bað er gott og afslappandi. Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir að þú smitist af COVID-19.

Bólusetningar

Það er ekki til bólusetning við COVID-19. Svo bólusetningar fyrir sjúkdómum á borð við lungnabólgu, flensu og því um líku veitir ekki vernd gegn COVID-19. Hins vegar geta slíkar bólusetningar verið gagnlegar heilsu þinni almennt og því mælt með þeim.

En hvað er þá hægt að gera ?

Engin lyf eru til við kórónuveirunni og besta leiðin sem við höfum til að lágmarka líkur á smiti er að fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Handþvottur, að spritta hendur, lágmarka samneyti við aðra, hnerra og hósta í olnbogabót eða klút, virða sóttkví og einangrun og gæta almennt að hreinlæti. Það er það eina sem við getum gert í stöðunni. Ekki láta selja ykkur snákaolíu. Hlustum á sérfræðingana og höldum stillingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“