fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Icelandair leggur nær öllum flugflota sínum – Nóg til af eldsneyti og matvælum í landinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 24. mars 2020 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðnætti tóku víðtækar lokanir gildi hér á landi í því skyni að reyna að draga úr útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Flestir opinberir staðir eru lokaðir, margar verslanir eru lokaðar og sundlaugar og söfn. Hjá atvinnulífinu hefur þurft að bregðast við heimsfaraldrinum á ýmsan hátt.

Nú er verið að undirbúa að leggja stærstum hluta flugflota Icelandair en vegna ráðstafana vegna COVID-19 liggur nær allt flug til og frá landinu niðri. Umfang starfsemi félagsins er nú aðeins um 14% af því sem gert var ráð fyrir í áætlunum þess. 240 starfsmönnum var sagt upp störfum í gær og hlutfall launa annarra lækkað sem og starfshlutfall.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að ferðaþjónustan í landinu sé nær stopp og farið er að þrengja að sjávarútveginum.

„Mér heyrist á mönnum í kringum mig að það sé óhjákvæmilegt að draga saman seglin.“

Hefur Morgunblaðið eftir Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Þar fer nú mikið af fiski í söltun því saltfiskur hefur mikið geymsluþol.

Samtök fjármálafyrirtækja og Landssamband lífeyrissjóði kynntu í gær samkomulag um tímabundinn greiðslufrest á lánum fyrirtækja. Þau geta sótt um allt að sex mánaða greiðslufresti hjá aðalviðskiptabönkum sínum. Markmiðið er að aðstoða fyrirtækin við að komast hratt og örugglega í skjól með einföldum hætti.

Vel er fylgst með hvort nægar birgðir eru af helstu nauðsynjum í landinu, það er mat, lyfjum og eldsneyti. Staðan er sögð vera góð að því er segir í frétt Morgunblaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Deilurnar um fjármál Sósíalistaflokksins: Haukur telur að stjórnvöld eigi að blanda sér í málið

Deilurnar um fjármál Sósíalistaflokksins: Haukur telur að stjórnvöld eigi að blanda sér í málið
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan Páll lenti í fangelsi í Egyptalandi – „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“

Kjartan Páll lenti í fangelsi í Egyptalandi – „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“