Gylfi Jón Gylfason, fyrrverandi fræðslustjóri Reykjanessbæjar og skólasálfræðingur til margra ára, hefur verið ákærður fyrir meint kynferðisbrot gegn unglingi sem var í sálfræðiviðtölum hjá honum. Gylfi hefur þegar fengið dóm í héraði fyrir kynferðisbrot gegn barni sem framið var árið 2017. Hefur hann áfrýjað þeim dómi til Landsréttar.
DV hefur í nokkurn tíma haft veður af yfirvofandi ákæru yfir Gylfa í þessu máli en unglingurinn kærði hann árið 2014. Vísir.is hefur nú staðfest að Gylfi hafi verið ákærður.
Hinn meinti brotaþoli var á unglingsaldri er meint brot áttu sér stað á árunum 2002 og 2003. Brotin eru sögð hafa verið framin í Holtaskóla þar sem drengurinn var nemandi.Var hann skikkaður í sálfræðiviðtöl vegna eineltismála og agavandamála. Viðtölin voru reglubundin og fóru fram í húsnæði Holtaskóla. Í lögregluyfirheyrslu frá árinu 2014 lýsir maðurinn því hvernig Gylfi hafi leitt talið að kynlífi í viðtölunum og áreitni hans hafi stigmagnast upp í káf á kynfærum og loks hafi hann nauðgað sér.
Rannsókn málsins eftir kæru árið 2014 leiddi ekki til ákæru. Þá bar Gylfi því við að margmenni hafi verið í skólanum þegar viðtölin áttu sér stað og hann hefði því ekki haft tóm til þeirra athafna sem hann var sakaður um. Ungi maðurinn hefur hins vegar sýnt fram á að næði og mannlaust umhverfi hafi verið þegar viðtölin áttu sér stað.
Málið var síðan endurupptekið haustið 2018 vegna nýrra upplýsinga frá vitni í málinu.
Eitt af því sem kemur fram í yfirheyrslum yfir manninum er að hann segir að Gylfi hafi reglulega gefið sér kók og prins póló eftir að hafa beitt hann ofbeldi.
Gylfi, sem er fæddur árið 1961, var ráðinn fræðslustjóri Reykjanessbæjar árið 2011 en í mörg ár áður hafði hann starfað sem skólasálfræðingur, einnig sem skólastjóri og meðferðarfulltrúi og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í velferðarkerfinu.
Sem fyrr segir var hann í fyrra fundinn sekur fyrir héraðsdómi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hann hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.
DV greindi frá því í fyrrahaust að mikil óánægja væri meðal skólastarfsfólks í Reykjanessbær vegna ástarsambands núverandi leikskólafulltrúa Reykjanessbæjar við Gylfa. Kona sem starfar við leikskóla í bænum sagði í viðtali við DV:
„Þetta er manneskja í ábyrgðarstöðu og fjallar um málefni barna. Ef það kemur upp mál hjá mér sem varðar grunsemdir um að misnotkun sé í gangi og mig vantar upplýsingar eða ráðleggingar get ég þá leitað til hennar? Hvernig get ég treyst hennar dómgreind í slíkum málum? Þetta er ekki traustvekjandi.“
Gylfi var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir Héraðsdómi Reykjaness vegna brotsins sem hann framdi árið 2017. Hann hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.
DV hefur margsinnis reynt að hafa tal af Gylfa til að bera undir hann ásakanir á hendur honum en hefur ekki tekist að ná í hann. Skráð símanúmer hans eru ekki lengur virk.