fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Þá koma jólin einnig á spítalann þrátt fyrir erfiðar aðstæður“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 16. desember 2020 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur sjúkrahússpresta og djákna birtu í dag pistil á Vísi þar sem að fjallað er um hvernig sé að halda jól á spítala og um hvað starfið snúist yfir hátíðirnar. Þar er fjallað um sálgæsluna sem þau sinna gagnvart skjólstæðingum sínum. Hún byggir oft á samtölum við sjúklinga og fjölskyldur. Fram kemur að lífsskoðanir skjólstæðinganna séu ólíkar, en stuðningurinn er veittur á þeirra forsendum.

„Við sem sinnum sálgæslu, sjúkrahússprestar- og djákni á Landspítala, fáum iðulega þær spurningar í tengslum við jól og aðventu hvort hægt sé að halda jól á spítala og hvernig slík jól séu. Eins deilir fólk vangaveltum sínum um það hvort jólin geti yfirhöfuð komið til þeirra sem dvelja á sjúkrahúsi um hátíðina.

Í daglegu starfi okkar og þjónustu á Landspítala sinnum við sálgæslu sem felur m.a. í sér samfylgd við sjúklinga og fjölskyldur á erfiðum stundum í lífi þess. Samfylgdin byggir á nærveru sem einkennist af virðingu, trúnaði og umhyggju fyrir hverri manneskju og aðstæðum hennar. Sálgæslan hefur margs konar birtingarform en mætir einstaklingnum þar sem hann er, í erfiðum tilfinningum, óvissu og merkingarleit. Lífsskoðanir þeirra sem þiggja þjónustu sálgæslunnar eru margbreytilegar og er því andlegur, tilvistarlegur og/eða trúarlegur stuðningur veittur á forsendum þeirra. Samtöl fara fram þar sem rætt er við sjúkling og/eða fjölskyldu hans um lengri eða skemmri tíma. Í þeim samtölum er einnig setið í þögninni og um leið fá djúpar og sárar tilfinningar ákveðinn farveg.“

„Þau eru mörg sem þiggja þennan stuðning þar sem oft er knýjandi þörf fyrir að sinna andlega þættinum þegar veikindi og áföll hafa komið inn í lífið. Tilvistarlegu vangavelturnar verða ágengar og vanmáttur í erfiðum aðstæðum gerir vart við sig þar sem fólk getur upplifað algjört hjálparleysi, kvíða og sorg. Þegar hér er komið nýtist fagþekking sjúkrahússpresta- og djákna, guðfræðin og menntun á sviði áfalla- og sorgarvinnu, handleiðslufræða og fjölskyldumeðferðar.“

Þá kemur fram að á aðventu og jólum sé jafnvel frekar óskað eftir þessari aðstoð. Líklega sé ástæðan sú að jólahátíðin á sér sérstakan stað í hjörtum margra. Gjarnan séu gamlar jólaminningar rifjaðar upp, en það séu oft góðar minningar sem getur reynst erfitt nálgast. Spurt er hvernig sé hægt að halda jól þegar að óvissa ríki um heilsu og jafnvel andlát yfirvofandi. Við því virðist ekki vera til einhlítt svar.

„Á aðventu og jólum er jafnvel meira kallað eftir þjónustu sálgæslunnar en á öðrum tímum ársins. Ástæða þess er án efa sú að aðdragandi jólahátíðarinnar og jólin sjálf snerta við ákveðnum streng í hjörtum fólks. Það fer í huganum til baka til fyrri jóla og deilir minningum sínum sem geta verið góðar og innihaldsríkar en einnig erfiðar og sársaukafullar. Í flestum tilfellum er þó áhersla lögð á að jólin eru tími þar sem tengsl og samskipti eru ræktuð við þau sem standa fólki næst svo sem fjölskyldu, vini og vinkonur. Að dvelja um jól á spítala reynir mikið á. Hvernig er hægt að halda jól þegar óvissa er um sjúkdómsgang og jafnvel andlát yfirvofandi? Við þeirri spurningu er ekkert einhlítt svar. Aftur á móti höfum við margoft verið vitni að því hvernig jólin og það sem þau standa fyrir, ljósið, friðurinn og samkenndin koma til fólks við sjúkra- og dánarbeð ekki bara á jólum heldur á öllum tímum ársins. Þegar jólin eru síðan hringd inn á aðfangadagskvöld þá koma jólin einnig á spítalann þrátt fyrir erfiðar aðstæður og allt verður heilagt.“

Að lokum kemur fram að jólin verði eflaust ólík fyrri jólum hjá flestum vegna aðstæðnanna í samfélaginu. Það þurfi þó ekki að þýða að við getum ekki fundið fyrir vináttu, umhyggju, ljósinu.

„Um þessar mundir verða jólin hjá okkur öllum með öðru sniði en áður. En þetta sammannlega sem við tengjum við jólin hefur ekki breyst. Við getum sýnt og meðtekið vináttu, umhyggju, ljósið sem skín í myrkrinu og innri frið. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður þá koma jólin. Guð gefi þér og þínum gleðileg og huggunarrík jól og blessunarríkt komandi ár.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Í gær

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu