fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Líkamsræktarstöð í Reykjavík segir viðskiptavinum sínum að vera tilbúna til að mæta á æfingu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 8. desember 2020 18:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nú skoðum við framhaldið og tilkynnum hvað við getum boðið upp á þegar reglugerðin kemur út. Verið a.m.k tilbúin að mæta á æfingu,“ segir í tilkynningu frá líkamsræktarstöðinni Crossfit Reykjavík, sem er til húsa í Faxafeni.

Næstkomandi fimmtudag tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir. Um er að ræða einhverjar tilslakanir en þær fela almennt ekki í sér opnun líkamsræktarstöðva. Reglugerðin gildir til 12. janúar.

Ein tilslökun gæti hugsanlega nýst líkamsræktarstöðvum: „Öllum er heimilt að stunda skipulagðar æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar.“

DV hafði samband við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Crossfit Reykjavík. Hún segir málið fyrst og fremst til skoðunar: „Við erum bara að skoða hvaða möguleika við höfum og munum gera það sem möguleikarnir leyfa okkur. Við klárlega megum vera úti. Þetta er bara svo nýkomið og ég er að skoða þetta frá öllum hliðum. Við munum nýta alla okkar möguleika, það er best að orða það þannig og það er engu við það að bæta á þessum tímapunkti,“ segir Hrönn en í fljótu bragði er ekki annað að sjá en einu möguleikarnir fyrir líkamsræktarstöðvarnar séu að bjóða viðskiptavinum sínum upp á útiæfingar. Vonandi viðrar til þess á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin