fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
Fréttir

Þrotabú Jóa Fel sendir rukkanir á fyrrverandi starfsmenn – Segja fólkið skulda fyrirtækinu – „Ekkert okkar skuldar neitt“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2020 10:00

Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrir fyrrverandi starfsmenn hjá Jóa Fel keðjunni sem tekin var til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu hafa verið að fá ábyrgðarbréf frá þrotabúi félagsins undanfarið þar sem því er haldið fram að þeir skuldi félaginu peninga. Starfsmennirnir kannast ekki við að skulda félaginu. Er sagt að ef þeir geti ekki framvísað kvittunum um að skuldirnar hafi verið greiddar upp verði gerður reikningur á viðkomandi.

Bréfin eru frá lögmannastofunni Landslög og undir þau skrifar Sveinbjörn Claessen lögmaður fyrir hönd skiptastjóra, Gríms Sigurðssonar lögmanns.

DV spurði fyrrverandi starfsmann hvort um gæti verið að ræða úttektir og sagði hún að úttektir hefði alltaf verið dregnar frá launum og hún hefði hætt störfum hjá Jóa Fel fyrir fimm árum. Í bréfi til þeirrar konu er sagt að hún skuldi rúmlega 20 þúsund krónur.

Önnur kona fékk hins vegar tilkynningu um að hún skuldaði þrotabúinu 267 þúsund krónur og önnur  167 þúsund krónur. Sú sem á að skulda 167 þúsund krónur hætti fyrir löngu síðan og því hefðu allar úttektir átt að hafa verið dregnar frá launum hennar.

Launaseðlar ættu að vera til í félaginu sem sýna svart á hvítu hvort úttektir hafi verið dregnar frá launum.

Í bréfi sem DV hefur undir höndum segir: „Við yfirferð skiptastjóra á bókhaldi hins gjaldþrota félags kom í ljós að skráð er óuppgerð skuld þín að fjárhæð 21.525.- krónur við félagið. Skiptastjóri hefur ekki aðrar upplýsingar úr bókhaldinu en að krafan sé enn útistandandi og ógreidd.“

DV ræddi við aðra konu sem sögð er skulda 247 þúsund krónur. Bréfin til þessarra kvenna eru samhljóða fyrir utan mismunandi upphæðir. Þessi kona vann hjá fyrirtækinu frá janúar 2018 til júní 2019. „Þetta er alveg klikkað. Ég er með alla launaseðlana mína og þeir stemma alveg. Alltaf dregið af manni ef maður tók út vörur hjá bakaríinu og svoleiðis. Ég skulda þeim bara ekki neitt. Ekkert okkar skuldar neitt. Ég treysti þeim að allt væri í góðu svo fær maður þetta bréf beint í andlitið á sér upp úr þurru,“ segir þessi kona og upplýsir að starfsfólk sem vann hjá Jóa Fel árið 2016  hafi líka fengið svona bréf.

Ekki náðist í þá Sveinbjörn Claessen og Grím Sigurðsson við vinnslu fréttarinnar en reynt verður að ná í þá síðar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Halla bendir á svívirðilegt óréttlæti – „Nýta sér skólana og fá sorpþjónustu eins og almennt launafólk, en leggja ekkert af mörkum“

Halla bendir á svívirðilegt óréttlæti – „Nýta sér skólana og fá sorpþjónustu eins og almennt launafólk, en leggja ekkert af mörkum“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Nýtt ofurflugskeyti Úkraínumanna dregur til Moskvu

Nýtt ofurflugskeyti Úkraínumanna dregur til Moskvu
Fréttir
Í gær

Ræða sameiningu símafyrirtækjanna – „Augljóst tækifæri ef þetta fengist gegnum Samkeppniseftirlitið“

Ræða sameiningu símafyrirtækjanna – „Augljóst tækifæri ef þetta fengist gegnum Samkeppniseftirlitið“
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið – Lúkas Geir í vitnastúku – Stefán sagði hann vera höfuðpaurinn

Gufunesmálið – Lúkas Geir í vitnastúku – Stefán sagði hann vera höfuðpaurinn
Fréttir
Í gær

Rússland sagt ramba á barmi bensínkrísu

Rússland sagt ramba á barmi bensínkrísu
Fréttir
Í gær

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása fær yfir sig skít og skammir fyrir að reyna að græða á því að selja eignir meinta raðmorðingjans

Ása fær yfir sig skít og skammir fyrir að reyna að græða á því að selja eignir meinta raðmorðingjans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Klóra sér í kollinum yfir draugahúsi konungsfjölskyldunnar í Kúveit á Arnarnesi

Klóra sér í kollinum yfir draugahúsi konungsfjölskyldunnar í Kúveit á Arnarnesi