fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Kolbrún lætur virka í athugasemdum heyra það – „Aumt er þeirra hlutskipti“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 26. nóvember 2020 08:40

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um rannsóknarrétt nútímans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, dregur upp eftirfarandi mynd af nettröllum í athugasemdakerfum netmiðla, í leiðara blaðsins í dag:

„Fólk sem hellir úr skálum reiði sinnar gerir engum greiða – síst sjálfu sér. Það hefur misst alla stjórn á sér og glatar um leið stórum hluta af virðingu sinni, sem er ekki gott. Þess vegna er skrýtið að þessir sömu einstaklingar, sem ættu að vera skömmustulegir vegna stjórnleysis síns, skuli leika sama misráðna leikinn hvað eftir annað. Þeir æpa í ofstopa en eru um leið ansi ánægðir með sjálfa sig og virðast jafnvel dást að eigin orðheppni.“

Kolbrún staðnæmist við árásir sem Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðiflokksins, hefur orðið fyrir undanfarið vegna gagnrýni sinnar á sóttvarnaaðgerðir yfirvalda:

„Hvað gefur einstaklingum rétt til að kalla aðra manneskju „aula“ – „aumkunarverða kellingu“ – „kvensnift“ – „fyrirlitlega manneskju“. Allt eru þetta orð sem féllu nýlega á athugasemdakerfi fjölmiðils. Þar var verið að beina spjótum að þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Sigríði Á. Andersen, sem hefur gagnrýnt sóttvarnaaðgerðir vegna COVID harðlega. Hún er sannarlega ekki ein um þá skoðun að þar sé alltof hart gengið fram, en ekki þora allir að setja þær skoðanir jafn skilmerkilega fram og hún. Margir kjósa svo einfaldlega að þegja, enda er það þægilegast.“

Kolbrún bendir á að aðgerðir gegn veirunni séu harðar og afdrifaríkar og nauðsynlegt sé að spyrja gagnrýninna spurninga í tengslum við þær:

„Í aðgerðum sem hafa áhrif á lífsafkomu fólks, skaða andlega heilsu of margra og valda ýmiss konar tjóni er mikilvægt að einhverjir standi lýðræðisvaktina, spyrji spurninga og gagnrýni. Það er illa komið þegar fólk þorir ekki lengur að segja skoðun sína og spyrja spurninga af ótta við ofsafengin viðbrögð. Og ofsafengin eru þau svo sannarlega – eins og Sigríður Á. Andersen hefur fengið að reyna, en ekki er langt síðan hún var í athugasemdakerfi beðin um að drepa sig. Ekki verður séð að Sigríður kippi sér upp við þann viðbjóð sem reglulega er hellt yfir hana af ofstopafólki á netinu. Hún virðist hafa óvenjulega sterk bein og það er vel. Ekki veitir af!

Það á að takast á um sóttvarnaaðgerðir vegna COVID en ekki tölta á eftir þríeykinu með hlýðnisvipinn blýfastan á andlitinu. Það verður að spyrja krefjandi spurninga um það af hverju þessi og hin tilskipunin þyki svo nauðsynleg. Fjöldi fólks, þar á meðal ungmenni, þjáist vegna þeirra hafta sem sett hafa verið á. Einstaklingar horfa fram á gjaldþrot, sumir þegar orðnir gjaldþrota, og atvinnuleysi eykst. Mannréttindi fólks hafa síðan verið verulega skert. Vegna alls þessa er bráðnauðsynlegt að spyrja spurninga og gagnrýna. Um leið er gott að hafa í huga að þegar COVID-aðgerðir verða gerðar upp um allan heim, þá er langlíklegast að niðurstaðan verði sú að farið hafi verið offari.“

Kolbrún bendir á mikilvægi rökræðu en óþol gagnvart rökræðu og andstæðum skoðunum fari vaxandi. Hún segir þetta um „dónana á netinu“:

„Upphrópanir og svívirðingar þykja alltof oft virka betur, samanber dónana á netinu. Þeir sjá það örugglega ekki sjálfir, en skítkastið sem þeir grípa til sýnir glöggt að mikil vansæld býr innra með þeim. Þeir vilja gera sig gildandi í umræðunni en kunna enga aðra aðferð en að svívirða þann sem þeir eru ósammála. Um leið eru þeir að dæma sjálfa sig sem ómerkinga. Aumt er þeirra hlutskipti!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt