fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fréttir

167 Icelandair þotur af íslenskum hestum fluttar út

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 22. október 2020 09:51

mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Hestvit tilkynnti í vikunni að það hefði flutt út tíuþúsundasta hestinn sinn á sínum ferli. Fyrirtækið er í eigu hjónanna Huldu Gústafsdóttur og Hinriks Bragasonar og hefur veiran lítil áhrif á eftirspurnina.

Þau hjónin hafa síðan árið 1989 staðið að útflutningi hesta og stofnuðu utan um þann rekstur fyrirtæki árið 2003. Sjá þau nú um að kaupa hesta innanlands til útflutnings, sem og að rækta þá til útflutnings auk þess að flytja út hross sem aðrir hafa selt. Árið 2019 flutti fyrirtækið út 653 hesta og stefnir í að sú tala hækki enn árið 2020 og því ekki að sjá að COVID sé að hafa neikvæð áhrif á þau millilandsviðskipti eins og svo mörg önnur. Hjá fyrirtækinu starfa börn þeirra Huldu og Hinriks og tengdadóttir. „COVID er ekki að setja strik í reikninginn hjá okkur. Það mætti meira að segja segja að

COVID sé að hafa þveröfug áhrif á útflutninginn og sala hesta bara nokkuð góð núna á þessu ári,“ sagði Hulda í samtali við blaðamann DV. Sagði hún að hugsanleg skýring á því væri að fólk hefði ef til vill meira milli handanna enda væri peningum ekki eytt í ferðalög á meðan.

Útflutningi fylgir mikið tilstand

Á hljóðinu í Huldu að dæma er ljóst að hún nýtur sín vel í þessum bransa og er stolt af því sem hún er að selja: „Íslenski hesturinn er fyrir löngu búinn að vinna sér inn sérstöðu og er mjög vinsæll til dæmis í Þýskalandi. Hestarnir okkar eru einstakir, gangtegundirnar, töltið og skeiðið og karakterinn þeirra, þeir eru svo ljúfir og góðir,“ útskýrir hún.

Að flytja út hest fylgir mikið tilstand, enda um 350 kílóa lifandi veru að ræða. Fyrst þarf að sækja hestinn og koma honum til dýralæknis sem fyllir út nauðsynlega pappíra sem fylgja hestinum út, svokallað vegabréf, auk þess sem dýralæknirinn vottar að hesturinn sé heilbrigður og hafi heilsu í ferðalagið. Að því loknu fer hesturinn til Keflavíkur, en þeir eru allir fluttir utan með flugi. Hestunum er í Keflavík komið fyrir í sérstökum fluggámum sem rúmast í Boeing 757 fraktflutningavélar Icelandair. Þar hitta hestarnir jafnframt umsjónarmann hestaflutninga hjá Icelandair sem flýgur með hestunum út.

167 fullar þotur

Fullhlaðinn rúmar Icelandair þota heila 60 hesta, og reiknast Huldu þannig til að um sé að ræða 167 fullar fraktflutningavélar Icelandair sem Hestvit hefur flutt út í gegnum árin. Hestarnir sem Hestvit selur til útlanda eru, að sögn Huldu, á breiðu verðbili. „Þeir byrja í svona fjögur til fimm hundruð þúsundum en geta farið í margar milljónir. Þar vegur auðvitað þyngst gæði hestsins, það er að segja gangtegundirnar, hvað hann lyftir fótunum hátt til dæmis, eða hvort hann henti í keppni eða bara sem reiðhestur,“ útskýrir hún.

Aðspurð hverjir það eru sem kaupi sér íslenska hesta segir Hulda það vera „alls konar fólk“ og tekur fyrir það að þetta sé yfirstéttarsport. „Nei, þetta er ekki ódýrt sport, vissulega, en þetta er ekki það dýrasta heldur, hvorki hérna heima né í Evrópu.“ Hér heima leggja um 20-30 þúsund manns stund á íþróttina. „Við erum þriðja stærsta sportið í ÍSÍ á eftir fótboltanum og golfinu,“ segir Hulda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Hera úr leik
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Íslenskur flugdólgur um borð í vél frá Play handtekinn í Alicante

Íslenskur flugdólgur um borð í vél frá Play handtekinn í Alicante
Fréttir
Í gær

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar
Fréttir
Í gær

Óli Palli ætlar ekki að horfa á Eurovision – Ísrael sé „hræðilegasta hrekkjusvín í öllum heiminum“

Óli Palli ætlar ekki að horfa á Eurovision – Ísrael sé „hræðilegasta hrekkjusvín í öllum heiminum“
Fréttir
Í gær

Ögmundur skilur ekkert í ritstjórn Kveiks – „Hvers vegna í ósköpunum var þessum fréttaskýringarþætti ekki tekið fagnandi?“

Ögmundur skilur ekkert í ritstjórn Kveiks – „Hvers vegna í ósköpunum var þessum fréttaskýringarþætti ekki tekið fagnandi?“
Fréttir
Í gær

Sagt upp eftir að hún krafðist leiðréttingar á kjörum sínum vegna meintrar mismununar

Sagt upp eftir að hún krafðist leiðréttingar á kjörum sínum vegna meintrar mismununar
Fréttir
Í gær

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina