Sextíu og níu greindust með kórónuveirusmit í gær og þar af voru 54 í sóttkví.
Tuttugu og sex eru inniliggjandi á Landspítala með sjúkdóminn og þar af eru fjórir í gjörgæslu.
Sóttvarnalæknir hefur sent minnisblað til heilbrigðisráðherra þar sem lagt til til að ekki verið slakað á sóttvarnaaðgerðum næstu viku. Skerpt verður á íþróttabanni og má búast við að allar íþróttaæfingar og keppnisíþróttir leggist niður tímabundið.