fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Davíð heiðursvísindamaður Landspítalans

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 8. október 2020 17:17

Davíð O. Arnar. Mynd: Landspítali

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga, er heiðursvísindamaður Landspítala 2020. Verðlaunin eru veitt árlega einstaklingi sem þykir hafa náð framúrskarandi árangri í vísindarannsóknum á sínum starfsferli.

Eftirfarandi fréttatilkynning hefur verið birt um málið:

„Heiðursvísindamaður Landspítala er útnefndur ár hvert og hefur vísindaráð Landspítala veg og vanda af útnefningunni. Eins og hefð er fyrir hélt heiðursvísindamaðurinn fyrirlestur um rannsóknir sínar að lokinni útnefningu, afhendingu heiðursskjals og heiðursverðlauna að upphæð 300 þúsund króna.

Davíð lauk kandidatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið doktorsprófi frá sama skóla auk meistaraprófs í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var við sérfræðinám við University of Iowa Hospitals and Clinics í Iowa City í Bandaríkjunum um sjö ára skeið og lauk þaðan sérfræðinámi í lyflækningum, hjartalækningum og raflífeðilsfræði hjartans. Hann hefur lokið Bandarískum sérfræðiprófum í lyflækningum og hjartalækningum og hefur sérfræðiviðurkenningu hérlendis í lyflækningum, hjartasjúkdómum og heilbrigðisstjórnun.

Davíð hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu innan heilbrigðiskerfisins og er yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, gestaprófessor við læknadeild Háskóla Íslands og formaður Félags íslenskra lyflækna. Hann hefur komið talsvert að félags og nefndarstörfum hjá Evrópusamtökum hjartalækna.

Hans megin áhugasvið í vísindarannsóknum snýr að erfðafræði hjartsláttartruflana, sér í lagi gáttatifs, og nýtingu erfðaupplýsinga í heilbrigðisþjónustu. Davíð hefur unnið mjög náið með Íslenskri erfðagreiningu og hafa niðurstöður rannsókna þeirra vakið verulega athygli, birst í mjög virtum tímaritum og aukið skilning okkar á grunnorsökum hjartsláttartruflana. Hafa rannsóknirnar meðal annars sýnt fram á mikilvægi stökkbreytinga í genum sem tjá samdráttarprótín hjartavöðvafruma í tilkomu gáttatifs. Hafa þessar uppgötvanir leitt til grundvallarbreytinga á hugmyndun um meingerð þessarar algengu hjartsláttatruflunar og gætu leitt af sér nýja nálgun í áhættumati og meðferð sjúkdómsins.

Einnig hefur Davíð unnið heilmikið að klínískum rannsóknum. Þar má nefna samstarfsverkefni með Hjartavernd á afleiðingum gáttatifs á heila, sér í lagi áhrif til skerðingar á vitrænni getu, minnkunar á heilablóðflæði og heilarúmmálsrýrnun. Davíð hefur mikinn áhuga á nýtingu snjalltækni til fjarvöktunar á einkennum og líðan hjartasjúklinga sem og til að efla fræðslu um mikilvægi lífstílsbreytinga. Davíð undirbýr nú rannsóknir á fýsileika þess að bæta við fjareftirliti og fræðslu með snjalltækni til viðbótar hefðbundinni meðferð við kransæðasjúkdómi, hjartabilun og gáttatifi í samstarfi við fyrirtækið Sidekick Health.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag