„Það er ekki inni í myndinni að loka hérna öllum samgöngum til landsins. Það myndi aldrei ganga upp. Þannig þetta kemur fyrr en síðar, en okkar nálgun miðast að því að tefja útbreiðsluna eins mikið og hægt er, með þeim aðgerðum sem verið er að grípa til. Draga aðeins úr faraldrinum þannig það verði ekki eins mikið álag á heilbrigðisþjónustuna, og sinna þeim sem veikjast eins og hægt er,“ segir Þórólfur um veiruna en uppruni hennar er rekinn til Wuhan í Kína.
Í samtalinu við mbl.is segir Þórólfur að hann geti ekki sagt til um líkurnar á því að veiran komi til landsins en að gert sé ráð fyrir því að hún komi. „Það er okkar nálgun á þetta, að þetta muni koma til Íslands. Hversu mikið er þó ómögulegt að segja. Við reynum að undirbúa okkur eins og hægt er. Undirbúum okkur undir það versta, en vonum að svo verði ekki. En við gerum fastlega ráð fyrir því að þetta komi hingað,“ ítrekar hann, en grunur um smit hefur komið upp í nágrannaríkjum okkar, til að mynda í Finnlandi, Bretlandi og nú síðast í Svíþjóð.
Þá segir Þórólfur að kerfið hér á landi sé ágætlega vel undirbúið til að bregðast við kórónaveirunni. „Upplýsingakerfið og samhæfingin er góð. En auðvitað getur maður spurt sig hvort innviðirnir séu það, til dæmis á Landspítalanum, ef það fara að koma mjög margir alvarlega veikir sem þurfa einangrun, þá getum við lent í vandræðum. En við erum að vinna með það sem við höfum og reynum að gera það eins vel og við getum. Svo verður það bara í koma í ljós hvað verður.“