fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Rúmlega helmingur veitinga- og skemmtistaða enn lokaðir

Auður Ösp
Mánudaginn 3. ágúst 2020 16:40

Laugavegur. LJósmynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfir 30 veitingastaðir í miðborg Reykjavíkur lokuðu í kjölfar Covid-19 faraldursins. Sex þeirra hafa lokað dyrum sínum alfarið, þar á meðal rótgrónir veitingastaðir sem hafa verið starfræktir áratugum saman.

Hertar fjöldatakmarkanir hafa í för með sér að ekki mega fleiri en 100 manns koma saman og opnunartími veitingastaða helst óbreyttur. Ljóst er að ákvörðunin mun hafa veruleg áhrif á rekstur á veitinga og skemmtistaða. Níu veitingastaðir í miðborginni hafa opnað á ný á síðustu vikum en sumir þeirra eru þó með skertan opnunartíma eða þá nýja eigendur. 14 staðir eru enn með læstar dyr og óvíst hvort eða hvenær þeir munu opna að nýju.

Uppfært 3.ágúst: Síðastliðinn fimmtudag, eftir að helgarblað DV var farið í prent tilkynnt eig­end­ur skemmti­staðar­ins B5 við Banka­stræti að gert yrði  hlé á starf­semi staðar­ins fram til 13. ág­úst.  B5 bætist þar með í hóp þeirra 14 staða sem lokaðir eru í miðborginni.

Hér má sjá yfirlit yfir þá veitinga- og skemmtistaði í miðborginni sem hafa ýmist lokað tímabundið eða alfarið eða þá lokað og opnað aftur.

Reksturinn sífellt flóknari

„Almennt séð hefur rekstrarumhverfið ekki lagast. Eitthvað hefur dottið inn af erlendum ferðamönnum en svo hafa Íslendingar auðvitað verið að ferðast meira innanlands en áður. Þetta fer oft eftir samsetningunni á kúnnahópnum. Sumir staðir eru með sterkan íslenskan kúnnahóp, aðrir ekki,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í samtali við DV

Jóhannes bendir á að veitingastaðarekstur í miðborginni hafi orðið sífellt flóknari og erfiðari síðustu misserin, og róðurinn hafi byrjað að þyngjast löngu áður en Covid-19 faraldurinn skall á. „Það er fyrst og fremst þessi gríðarhái kostnaður, húsaleiga og launakostnaður. Þú þarft ákveðið mikla nýtingu á staðnum til að halda uppi launakostnaði, þegar nýtingin er undir því eða á mörkunum, verður reksturinn gríðarlega flókinn. Samkvæmt þeim veitingamönnum sem ég hef rætt við þá er orðið mjög erfitt að halda launakostnaðinum undir 50 prósentum. Það segir sig sjálft að þá er orðið mjög stutt í að sá kostnaður verði orðinn ósjálfbær.“

Jóhannes bendir á að flestir staðir noti sumarið til að safna forða fyrir veturinn og jafna út árstíðabundnar sveiflur. Núna blasir við að rekstraraðilar þurfa að fara blint inn í næsta vetur.

„Það er erfitt að segja til um næstu mánuði, við þurfum að taka stöðuna í lok október. Staðirnir hafa margir verið að bjóða mikla afslætti og Íslendingar hafa tekið vel við sér, sem er auðvitað frábært. En þetta verður erfiður vetur, bæði í miðborginni og úti á landi, það er auðvitað alveg ljóst.“

Mikilvægt að hafa góðan grunn

„Það varð smá kippur eftir að landið var opnað aftur fyrir ferðamönnum. Eins og er þá erum við mest að lifa á helgunum. Þetta hefur gengið ágætlega,“ segir Ívar Þórðarson, annar eigandi Humarhússins, en hann rak einnig veitinga- staðinn Lækjarbrekku þar til í apríl síðastliðnum.

Ívar segir rekstur beggja staðanna hafa farið að þyngjast löngu áður en Covid-19 skall á, ekki síst eftir að WOW Air lagði upp laupana. Að lokum hafi ekki verið annað í stöðunni en skella í lás á Lækjarbrekku og einblína á að halda Humarhúsinu gangandi.  „Við vorum haltir eftir WOW. Covid var síðan rothöggið. Við gátum ekki haldið þessu á lífi lengur.“

Lækjabrekka lokaði í vor

Ívar tekur hiklaust undir að samsetning kúnnahópsins hafi mikið að segja. „Það skiptir mjög miklu máli að vera með góðan grunn í ,,lókal.“ Við höfum auðvitað alltaf einblínt á túristana og við söknum stóru hópanna mikið.“

Íslendingar sækja í framandi mat

Þórir Björn Ríkharðsson er einn af eigendum veitingahússins Skólabrúar og indverska veitingastaðarins Gandhi í Pósthússtræti. Báðum stöðunum var lokað í vor, Skólabrú til frambúðar og Gandhi tímabundið. Stefnt er að því að opna Gandhi á nýjum stað á Bergstaðastræti um miðjan ágúst. Þórir tekur fram að Gandhi hafi gengið mun betur, enda hafi rekstr-inum verið beint meira að Íslendingum, sem margir sækja í framandi mat. Því hafi verið grundvöllur fyrir að halda rekstrinum áfram, í nýju og hentugra húsnæði. Hjá Skólabrú var hins vegar aðeins eitt í stöðunni.

„Leigusamningurinn var að renna út akkúrat á þessum tímapunkti og Covid hafði úrslitavaldið,“ segir Þórir, aðspurður um lokun Skólabrúar. Hann bætir við að einnig hafi spilað inn í aðrir þættir: Húsnæðið hafi verið of stórt undir reksturinn og þá hafi launakostnaður hækkað um 40 prósent á fjórum árum.

Skólabrú hefur verið lokað fyrir fullt og allt

„Það segir sig sjálft að staðir eins og Skólabrú, sem eru ein- göngu á túristamarkaðnum, þeir eiga engan séns. Þú skiptir ekki um gír bara sisvona. Við unnum alltaf með ferðaskrifstofum, sérstaklega í Bandaríkjunum og Kanada. Hinir staðirnir sem voru meira að fókusera á til dæmis kokteila og innanlandsmarkað og voru áberandi á samfélagsmiðlum, höggið var ekki eins gríðarlegt fyrir þá.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“