Þrjú innanlandssmit greindust í gær auk tveggja til viðbótar við landamærin. Þannig greindust fimm einstaklingar með jákvætt Covid-19 smit í gær á Íslandi.
Í tilkynningu almannavarna segir að eitt smitið tengist smitinu sem greint var frá í gær á ReyCUP fótboltamótinu. Hefur sá verið sendur í einangrun og sextán sem voru í nánu samneyti við hann í sóttkví. Sá smitaði var þátttakandi í félagsstarfi íþróttafélags í Reykjavík og er samkvæmt tilkynningunni, „einungis hluti íþróttaliðsins“ í sóttkví. Aðrir sem sendir voru í sóttkví tengjast manninum á annan hátt. Uppruni þessa smits er ófundinn og smitrakning í fullum gangi hjá smitrakningateymi ríkislögreglustjóra.
Mótshaldarar ReyCUP mótsins hafa farið eftir þeim leiðbeiningum og reglum sóttvarnalæknis og almannavarna sem enn eru í gildi og hafa viðeigandi ráðstafanir verið gerðar. Þó vöktu myndir af mótinu gær athygli þar sem sjá mátti í mjög nánu samneyti að fagna góðu gengi síns liðs úti á vellinum.
Rétt fyrir kl 11 í dag birtu mótshaldarar eftirfarandi tilkynningu á Facebook síðu sinni. Þar stendur „“ATH: Foreldrar vinsamlegast virðið þær reglur að keppendur sækja sjálf dótið sitt í skólanum. Foreldrum er EKKI heimilt að gera það. Takk fyrir sýndan skilning.“
Annað smit greindist í gær en tengist það smiti sem greint var frá í fyrradag. Segir í tilkynningunni: „Íslensk erfðagreining hefur raðgreint smitin og komið hefur í ljós ný tegund veiru sem hefur ekki greinst hér áður.“ Unnið er að smitrakningu í því máli einnig og er sá smitaði í einangrun og 12 í sóttkví vegna smitsins.
Þriðja smitið sem um ræðir er frá manni sem kom til Íslands fyrir 11 dögum síðan, 15. júlí. Hann greindist á suðvesturhorni landsins. Sá er nú í einangrun og sex sem voru í nánu samneyti við hann í sóttkví. Tveir af þeim eru þegar farnir að sýna einkenni veirusmits.
Þar að auki greindust tveir við landamærin og er beðið eftir niðurstöðu frekari rannsókna eins og verkferill í smitum við landamæri kveða á um.
Að lokum segir í tilkynningunni:
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis brýna fyrir fólki að gæta varúðar og huga vel að einstaklingsbundnum smitvörnum. Leiki minnsti vafi á hvort einkenni Covid-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beðinn um að fara í sýnatöku á næstu heilsugæslustöð.