fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Mótmæla lokun og segja rök Áslaugar ekki halda vatni

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 13. júlí 2020 13:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnir Lögreglufélags Eyjafjarðar og Lögreglufélags Þingeyinga mótmæla harðlega fyrirhugaðri lokun Fangelsisins á Akureyri og furða sig á því að til standi að loka vel reknu og góðu betrunarúrræði. Full þörf sé á fangelsinu og það verði seint kallað óhagkvæmt í rekstri. Þess að auki kemur lokun til með að hafa mjög neikvæð áhrif á Lögregluna á Norðurlandi eystra.  Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá félögunum þar sem félögin hrekja helstu rök Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, fyrir lokun fangelsisins.

Í tilkynningu eru helstu rök dómsmálaráðherra fyrir lokuninni hrakin.

Fullyrðingar standast ekki

„Í fyrsta lagi standast tæplega fullyrðingar um að fangelsið á Akureyri sé óhagkvæm rekstrareining. Í öðru lagi virðist hafa gleymst að horfa til þess óhagræðis sem lokunin mun hafa fyrir lögregluna á svæðinu“

Fangelsið á Akureyri deili húsnæði með Lögreglunni á Akureyri og í tilkynningu segir að um árabil hafi náið samstarf verið milli þessara stofnana, báðum til hagsbóta og hagræðis.

„Á næturvöktunum er aðeins einn fangavörður á vakt en tveir fangaverðir á daginn. Fangelsismálastofnun sparar þannig einn starfsmanna helming tímans, þar sem lögreglan aðstoðar og tryggir öryggi fangavarðar á næturvöktum. Á móti sinna fangaverðirnir þeim sem lögregla handtekur og vistar í fangaklefum sínum til skamms tíma. Lögreglan þarf því ekki að festa lögreglumenn við gæslu handtekinna á dagvöktum, og festa aðeins einn lögreglumann við það á næturvakt í stað tveggja. Fleiri lögreglumenn eru þannig lausir í útköll og önnur verkefni hverju sinni.“

Ekki dýrt í rekstri í stóra samhenginu

Dómsmálaráðherra hefur bent á að það kosti 100 milljónir króna á ári að reka fangelsið. Lögreglufélögin tvö benda á að það sé aðeins 4,5 prósent af því fjármagni sem Fangelsismálastofnun sé úthlutað með fjárlögum. Hins vegar sjái fangelsið fyrir meira en 6 prósent fangelsisrýma á landinu, auk þess sem færri starfsmenn þurfi á hvert fangelsisrými heldur en til dæmis á Litla Hrauni.  Hvert pláss á Akureyri sé því ódýrara en pláss á Litla Hrauni.

Um rök dómsmálaráðherra um að nýting á fangelsisrýmum á Akureyri hafi verið undir 80 prósentum segir í tilkynningu að það sé nokkuð sem lögreglumenn á Akureyri hafi furðað sig á, þar sem laus pláss hafi verið á meðan boðunarlistar til afplánunar hafi lengst.

„En nýtingin er ekki Fangelsinu á Akureyri sjálfu að kenna, það er yfirstjórn FMS sem boðar fólk til afplánunar og skiptir niður á fangelsin. Einnig má benda á að nýting undir 80% á ekki bara við um Fangelsið á Akureyri, sú tala á við um meðalnýtingu allra fangelsisrýma á Íslandi síðustu þrjú ár“

Lokun bitnar á lögreglunni

Ljóst sé að þessi lokun muni hafa neikvæð áhrif á störf lögreglunnar á  Norðurlandi eystra.

„Fleiri daga en færri er einhver vistaður í fangaklefum lögreglu. Standi lokunin munu lögreglumenn á Akureyri ítrekað verða bundnir yfir fangagæslu, þá oftast  tveir af fimm vakthafandi lögreglumönnum. Það þarf ekki að fjölyrða um hvernig það mun koma niður á löggæslu á svæðinu. Eigi svo ekki að vera þarf lögreglan að leggja út í mikinn kostnað við fangagæslu, annaðhvort með aukavinnu eða með því að ráða fleiri starfsmenn. Þá myndi lokunin einnig auka mjög flækjustig við rannsóknir mála þar sem sakborningar sæta gæsluvarðhaldi.

Það er ljóst að það fyrirkomulag sem er í dag, með Fangelsið á Akureyri áfram opið og í samstarfi við lögreglu telst áfram hagkvæmur kostur fyrir Lögregluna á Norðurlandi eystra, fyrir Fangelsismálastofnun og þá um leið fyrir ríkið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu