fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Evu leið eins og að barnið sitt hefði tekið þriggja ára þroskastökk útaf COVID

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Unichef, segir frá viðbrögðum barna sinna við COVID-19 í pistli sem birtist á Vísi. Hún segist hafa spurt börnin sín, fimm og tíu ára, út í áhrif veirunnar og segir að svörin hafi komið sér á óvart.

„Við fjölskyldan höfum undanfarnar vikur átt okkar hæðir og lægðir í samkomubanni, eins og líklega flestar aðrar fjölskyldur. Börnin mín hafa mætt til skiptis í skólana sína og við foreldrarnir skipst á að brúa bilið hér heima. Milli barnavakta loka ég mig inni í svefnherbergi og reyni að sinna starfi mínu fyrir UNICEF, en til viðbótar við hefðbundin verkefni ákváðum við leggja okkar á vogarskálarnar til að fylgjast með áhrifum kórónaveirufaraldursins á börn.

Það var því sérstaklega áhugavert fyrir mig að prófa nýja spurningakönnun UNICEF fyrir börn um skoðanir þeirra á kórónaveirunni. Áður en við settum hana í loftið vildi ég vita hvernig hún virkar og hvort hún virkar! Það er nefnilega svo skrýtið að jafnvel þótt ég vinni við að segja fólki að hlusta meira á börn, þá hafa samfélagslega mótaðar hugmyndir okkar um getu barna enn áhrif á mig. Ég var ekki alveg viss hvort börnin mín hefðu eitthvað að segja um líðan sína á tímum heimsfaraldurs. Annað kom í ljós.“

Eva segir að svar yngra barnsins hefði gefið þriggja ára þroskastökk á tveimur mánuðum í skyn. Hins vegar hefði eldra barnið virst hafa talsverðar áhyggjur af stöðunni.

„Þegar þau voru spurð hvað þeim fyndist um kórónaveiruna stóð ekki á svari. Leikskólabarninu fannst hún ekki alveg í lagi og verst að leðurblökur væru til. Það eina jákvæða við þetta allt saman væri að þau börn sem langar ekki í skólann gætu verið heima sér. Eftir nokkra umræðu og umhugsun bætti hún við: „Það er eitt fyndið við kórónaveiruna, því þegar maður er í leikskólanum langar manni að vera heima og loksins þegar maður er heima þá vill maður vera í leikskólanum! Þá fattar maður að manni leiðist bara ef maður er heima, en í leikskólanum er miklu meira að gera og miklu skemmtilegra.“ Það var eins og barnið hefði tekið þriggja ára þroskastökk á tveimur mánuðum. Hugsið ykkur hvað börn læra mikið af nýjum áskorunum, góðum og slæmum!

Sá 9 ára var hins vegar töluvert áhyggjufyllri. Honum datt ekkert jákvætt í hug varðandi kórónaveiruna og sagði slæmt hvað hún drepi marga og hversu margir verða veikir. Hann viðurkenndi líka að hann væri svolítið stressaður þegar hann horfði á fréttir. Hann var þó jákvæður gagnvart skólanum. Þar fengi hann allar upplýsingar um faraldurinn sem hann þyrfti og það væri nú bara svolítið ævintýra að breyta til. En ég varð hugsi þegar hann sagðist viðbúinn ef faraldurinn færi aftur stað því nú kynni hann 2 metra regluna. Það er greinilegt að áhyggjur af veirunni eru eitthvað sem við þurfum að halda áfram að ræða þótt samkomubanninu ljúki.“

Að lokum hvetur Eva foreldra til að spyrja börnin sín þessara spurninga, til þess að styrkja rödd þeirra á heimilinu og samfélaginu.

„Börnunum þótti gaman að svara spurningunum og verkefnið í heild svolítið merkilegt. Þau voru gjarnan til í að deila svörum sínum til að vekja athygli á könnuninni, því þeim eins og mér þykir mikilvægt að hlustað sé á skoðanir barna. Við hvetjum foreldra og börn til að taka sér smá tíma (við erum öll búin að læra það núna!) og svara könnuninni saman. Þannig styrkjum við rödd barna á heimilum sínum og aðstoðum UNICEF við að varpa ljósi á líðan og skoðanir barna á Íslandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð