fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Frænka Söndru biðlar til íbúa á Álftanesi – „Einhver hlýtur að hafa séð eitthvað“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 14. apríl 2020 09:49

Frænkurnar á góðri stundu. Sandra til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Olga María Þórhallsdóttir Long, náfrænka Söndru Lífar Þórarinsdóttur Long, sem ekkert hefur spurst til síðan á skírdag, telur líklegt að íbúar í grennd við svæðið á Álftanesi þar sem bíll Söndru Lífar fannst á aðfaranótt laugardag hafi séð eitthvað eða búi jafnvel yfir myndefni á eftirlitsmyndavélum frá atvikinu. Bíll Söndru fannst við Kasthúsatjörn á Álftanesi en leit björgunarsveita og þyrlu Landhelgisgæslunnar hefur meðal annars beinst að tjörninni.

„Við fjölskyldan fórum þarna í fyrsta skipti í gær og gengum um svæðið. Þetta er fremur opið svæði og það eru hús þarna í um 20 metra fjarlægð frá sjó. Við viljum biðla til þeirra íbúa sem eiga hús þarna alveg við, og sumir eru með eftirlitsmyndavélar utan á húsunum sínum, að stíga fram ef þeir hafa upplýsingar. Þetta er útivistarsvæði og bíllinn finnst ekki fyrr en á aðfaranótt laugardag. Einhver hlýtur að hafa séð eitthvað. Fólk sem hugsanlega var úti í glugga og sá eitthvað er beðið um að láta vita,“ segir Olga.

Sandra er 27 ára gömul og býr í Setbergi í Hafnarfirði. Hún stundar nám í þjóðfræði við Háskóla Íslands og vinnur sem þjónn meðfram náminu. Sandra er 27 ára gömul. Hún og Olga hafa ávallt verið mjög nánar. Sandra flutti með móður sinni til Svíþjóðar eftir grunnskóla og kláraði framhaldsskóla þar. Síðan fór hún út á vinnumarkaðinn. Hún flutti aftur til Íslands fyrir nokkrum árum en móðir hennar býr enn í Svíþjóð.

Sandra fór frá heimili sínu í Setbergi í Hafnarfirði um hádegisbil á skírdag/fimmtudag og fór í mat til ömmu sinnar og afa. Olga telur líklegt að Sandra hafi varið eftirmiðdeginum við nám en hún hafði meðferðis tösku sem aðallega voru í stílabækur. Hún heimsótti vinkonu sína sem hún kynntist í gegnum vinkonu sína og fór frá henni á sjöunda tímanum á fimmtudagskvöldið.

„Þetta var bara stutt spjall og vinkona hennar segir að ekkert athugavert hefði verið við hana. Hún sést síðan á eftirlitsmyndavélum keyra inn á Álftanes um klukkan sjö,“ segir Olga.

Að sögn Olgu var ekki úr karakter fyrir Söndru að leggja bíl sínum á þessu svæði og fara í gönguferð. „Hún er mikil útivistarmanneskja og gengur á fjöll. Þannig að okkur finnst ekkert athugavert við að hún hafi farið í gönguferð þarna því það var líka mjög fallegt sólsetur um þetta leyti.“

Fjölskyldan óttast að hörmulegt slys hafi orðið. „Það er það sem við erum farin að halda. Þess vegna hefur leitin verið mjög mikil til sjós.“

Að sögn Olgu verður Grótta á Seltjarnarnesi megináherslusvæði leitar í dag. „Eftir því sem okkur er sagt verður megináherslan þar í dag. Þar er háflæði kl. 11:17 og aftur kl. 17:17.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Komin í leitirnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“