„Ég bý á fjórðu hæð í húsi í Aðalstræti í íbúð sem ég leigi hjá Félagsbústöðum. Allir í húsinu eru með undirliggjandi sjúkdóma, ég er sjálf með krabbamein og lungnasjúkdóm og svipað er ástatt um aðra íbúa hér. Hér hefur sorp ekki verið losað síðan verkfallið hófst og sorprennurnar eru stíflaðar alveg upp á fjórðu hæð,“ segir eldri kona sem býr í leiguhúsnæði við Aðalstræti.
Þrátt fyrir að verkfalli sorphirðumanna hafi lokið fyrir nokkru síðan hefur sorp enn ekki verið hreinstað úr húsinu. „Ég er ekki með neitt bakland en ég komst við illan leik niður í þvottahús til að þvo rúmfötin mín. Þá kemur fram maður af annarri hæð og spyr hvort ég viti með ruslið. Við erum bæði komin með ruslapoka út á svalir því rennurnar eru stíflaðar. Við erum líka með hlífðarhanska og fyrir vitunum. Þegar ég opna lúguna að rennunni þá kemur ský af kolsvörtum flugum út úr henni. Þetta hefur klakist út í þessum viðbjóði í rennunni,“ segir konan.
Konan hringdi í Heilbrigðiseftirlitið og var tjáð að sorphirðumenn hefðu átt að koma á mánudag eða þriðjudag. Það gerðu þeir ekki. Ekki er von á þeim fyrr en í fyrsta lagi næsta mánudag eða þriðjudag.
„Við erum öll í áhættu hér, viðkvæmt fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Það er komin fýla í húsið en það sem angrar mig mest eru flugurnar. Við höfum aldrei haft þessar flugur áður og þær hafa orðið til í ruslarennunum og í hvaða viðbjóði hafa þær verið?“
DV fór á staðinn og komst inn í þvottahús. Þar er ein sorprenna og á henni stendur að hún sé lokuð. Þegar rennan var opnuð reyndist hún stífluð af sorpi og eitthvað af flugum kom út. Ekki tókst að komast að sjálfri sorpgeymslunni sem var læst. Meðfylgjandi myndir voru teknar á vettvangi.