Nýir kjarasamningar hafa verið undirritaðir milli Blaðmannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Eru þeir á grunni lífsjarasamningsins sem gerður var á almennum markaði í fyrravor.
„Samningurinn er afturvirkur til 1. mars og þá hækka öll laun og launataxtar um 17 þús. Frá 1. apríl nk. hækka öll laun um 18 þús og kauptaxtar um 24 þús. Frá 1. apríl er launahækkunin þannig 35 þúsund að lágmarki fyrir alla og 41 þúsund fyrir þá sem eru á töxtunum,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, í samantekt um samninginn.
Í samningnum eru jafnframt ákvæði um greiðslur fyrir yfirvinnu en um það segir Hjálmar:
„Ólaunuð yfirvinna hefur verið stærsta meinsemdin hvað varðar kjör blaðamanna á undanförnum árum, sem undantekningalítið vinna yfirvinnu án þess að fá hana greidda nema stundum, mismunandi eftir vinnustöðum. Afdráttarlaust er kveðið á um það að sé yfirvinna ekki greidd með venjulegum hætti er hægt að semja um að safna upp frídögum en fá yfirvinnuálagið greitt út með launum hverju sinni. Ef frídagar eru ekki teknir út fyrir 1. maí ár hvert eru þeir greiddir út.“
Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst á hádegi þriðjudaginn 24. mars.
Sjá nánar á vef Blaðamannafélags Íslands.