Bikarúrslitaleikur ÍBV og Stjörnunnar þann 7. mars var fjölmenn og stemningsrík íþróttahátíð þar sem Vestmannaeyingar fögnuðu sigri. Í sjónvarpinu mátti sjá hunduð ef ekki þúsundir manna faðmast og kyssast í fagnaðarlátunum. Nú bendir margt til að COVID-veiran hafi borist til Vestmannaeyja eftir þennan leik.
Í frétt á vef RÚV segir:
„Grunur leikur á að rekja megi einhverjar af COVID-19 sýkingunum í Vestmannaeyjum til bikarúrslitaleiks ÍBV og Stjörnunnar í Laugardalshöll fyrr í þessum mánuði. Þetta segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, hjá ríkislögreglustjóra. Einn úr þjálfaraliði Stjörnunnar greindist með COVID-19 tæpri viku eftir leikinn.
„Það er allavega einn möguleiki sem er verið að skoða, hvort þetta tengist þeim leik,“ segir Víðir í samtali við fréttastofu.“
„Um hundrað manns hafa þurft að fara í sóttkví í kringum þessi 10 staðfestu tilfelli og auk þess er talsverður fjöldi fólks í sóttkví vegna dvalar á áhættusvæðum. Loka hefur þurft leikskólanum Sóla tímabundið og í gærkvöldi var ákveðið að 7. bekkir Grunnskóla Vestmannaeyja væru heima í dag. Ástæðan fyrir því var að nemendur þar tengjast tilfellum og auk þess hefur verið óvenju mikið um veikindi í þessum árgangi. Sýni voru tekin frá öllum nemendum sem eru með einkenni og niðurstöður sýna sem tekin voru í gær eru neikvæðar. Sýni voru tekin hjá öðrum nemendum með einkenni í árgangnum í dag og er niðurstöðum þeirra að vænta í kvöld og á morgun.“