fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

Ásakanir gegn Gylfa ná mörg ár aftur í tímann – Sakaður um að bjóða sálfræðitíma gegn kynlífsgreiða

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. mars 2020 15:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Jón Gylfason, fyrrverandi fræðslustjóri Reykjanesbæjar og sálfræðingur, sá sig knúinn til þess að senda fjöldapóst á alla starfsmenn Reykjanesbæjar árið 2010 til að sverja af sér áburð um kynferðislega áreitni við konur. Gylfi var þá yfirsálfræðingur á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. DV hefur þennan tölvupóst undir höndum en þar segir meðal annars:

„Í vetur gerðist það að maður sem taldi sig eiga sökótt við mig sendi lykilfólki í mínu lífi eins og konunni minni fyrrverandi og fleirum SMS og tölvupósta þar sem sagt var að konum sem væru hjá mér í viðtölum væri ekki óhætt þar sem ég leitaði á þær. Hann talaði einnig beint við suma og sagði þeim ljótar sögur. Í sumum póstunum var nafngreind kona sem hefur aldrei verið hjá mér í viðtölum eða verið skjólstæðingur minn. Ég leitaði að lokum til lögreglunnar sem talaði við manninn og linnti þá ofsóknunum. Skaðinn er hins vegar skeður og Gróa hafði fengið eitthvað til að tyggja á. Sagan er auðvitað fjarstæða en þar sem vegið er að æru minni og starfsheiðri tel ég mig knúinn til að senda ykkur þennan póst og greina ykkur frá málavöxtum.“

DV hefur einnig undir höndum hljóðritun af símtali sem maður einn á við Gylfa þar sem Gylfi bregst við ásökunum á hendur sér. Segist hann hafa verið að deita konu og tiltekinn maður hefði síðan komið þeirri sögu af stað að konan væri hjá honum í sálfræðitímum.

Eins og við greindum frá í vikunni hefur héraðssaksóknari nú ákært Gylfa fyrir meint kynferðisbrot gegn unglingi sem var í sálfræðiviðtölum hjá honum á árunum 2002 og 2003. Viðtölin og hin meinta misnotkun áttu sér stað í Holtaskóla í Reykjanesbæ. Í umræddu símtali segir Gylfi að þessi maður sé að ofsækja sig og koma af stað sögum um sig. Rannsókninni sem fór af stað árið 2014 lauk án ákæru. Málið var hins vegar endurupptekið haustið 2018 vegna nýs vitnisburðar.

Sjá einnig: Gylfi ákærður fyrir kynferðisbrot gegn unglingi sem var í sálfræðimeðferð hjá honum

Þá segir Gylfi enn fremur í símtalinu: „Ég deitaði einu sinni stelpu og þá sagði hennar fyrrverandi að hún væri í sálfræðitímum hjá mér og ég væri að skipta á sálfræðitímum og kynlífsgreiðum.“ Segir Gylfi að sagan sé þvættingur. Samkvæmt þessu hafa að minnsta kosti tveir menn á þessum tíma sakað Gylfa um ósæmilega hegðun.

Einnig hefur komið fram að Gylfi var í fyrra sakfelldur í héraðsdómi fyrir gróft kynferðisbrot gegn barni, framið árið 2017. Hefur hann áfrýjað þeim dómi til Landsréttar en hann hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Gylfi hefur undanfarin misseri átt í ástarsambandi við leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar og hefur það vakið mikla ólgu meðal kennara í sveitarfélaginu, að manneskja í þessu starfi eigi í sambandi við dæmdan barnaníðing.

Ljóst er að þær ásakanir sem fóru á kreik um Gylfa í kringum árið 2010 hljóta að skoðast í öðru ljósi eftir að hann hefur verið dæmdur fyrir eitt kynferðisbrot og ákærður fyrir annað. Ekkert verður hins vegar fullyrt um sanngildi þeirra.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“
Fréttir
Í gær

Drengurinn kominn í leitirnar

Drengurinn kominn í leitirnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur yfir Begga blinda fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum staðfestur – „Mig hefur kannski langað í eitthvað kynlíf“

Dómur yfir Begga blinda fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum staðfestur – „Mig hefur kannski langað í eitthvað kynlíf“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alvarlegt slys við Hvítá

Alvarlegt slys við Hvítá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja stækka friðlandið í Gróttu mikið – Mun ná að golfklúbbi Seltjarnarness

Vilja stækka friðlandið í Gróttu mikið – Mun ná að golfklúbbi Seltjarnarness
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka