Ástralski ferðamaðurinn sem lést á Húsavík á mánudaginn og var greindur með COVID-19, lést af öllum líkindum af veirunni. Alma Möller landlæknir greindi frá þessu á upplýsingafundi um COVID-19.
Endanleg skýrsla um dánarorsök liggur ekki fyrir en allt bendir til að COVID-19 hafi verið dánarorsökin. Við krufningu kom í ljós lungnabólga.
Maðurinn var um fertugt. Eiginkona hans er stödd hér á landi og hefur hún greinst með veiruna.