„Ég efast ekki um að þeir sem standa þarna í stafni hafi staðið frammi fyrir hrikalega erfiðri ákvörðun. Við sjálfsútnefndu sérfræðingarnir erum oft ekki með allar upplýsingar hjá okkur. En keppnin var á sínum tíma stofnuð til að sameina Evrópu á erfiðum tímum, þ.e. eftirstríðsárunum, og ég held að einmitt síðustu árin hafi tekist betur til með þetta en nokkru sinni fyrr. Þess vegna finnst mér þetta svo mikill ósigur mannsandans, að bara pakka saman og flauta keppnina af. Evrópa hefur aldrei þurft eins mikið á þessari keppni að halda og núna,“ segir Einar Bárðason, lagahöfundur og almannatengill með meiru, í samtali við DV.
Eins og margir er Einar afar ósáttur við þá ákvörðun að aflýsa Eurovision í ár vegna COVID-19. „Ég held að annaðhvort hefði átt að fara í einfaldara form á keppninni þetta árið eða fresta henni fram til haustsins,“ segir Einar og telur að klárlega hafi versti kosturinn verið valinn.
Einar hefur tengst Eurovision með margvíslegum hætti um árabil. Hann átti lag í keppninni árið 2001 og hefur margsinnið setið í dómnefndum bæði hér heima og erlendis. Meðfylgjandi mynd sýnir Einar, Jan Ole Sand, stjórnanda Eurovision fyrir EBU, og Helgu Möller, er Einar og Helga voru við dómnefndarstörf fyrir þýska ríkissjónvarpið fyrir tveimur árum.
„Í ár var mitt helsta hlutverk í keppninni að aðstoða unga konu sem heitir Nína og stóð sig frábærlega í keppninni hér heima. Ég var líka í forvalsdómnefndum fyrir þýska og austurríska sjónvarpið.
Einar er langt því frá sé eini sem hefur tjáð sig með neikvæðum hætti um ákvörðun yfirstjórnar Eurovision. Reynir Traustason, nýráðinn ritstjóri Mannlífs, orðar það sem margir hugsa tæpitungulaust er hann segir á Facebook-síðu sinni:
„Hvaða fíflagangur er þetta með Euruvision. Auðvitað er hægt að halda keppnina án þess að vera með lifandi útsendingu. Fólk kýs einfaldlega um myndböndin. Það er fínt sjónvarp.“