fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Fréttir

Kemur í ljós á næstunni hvort COVID-19 sé að færast í aukana hér á landi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2020 14:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikill fjöldi greindist með kórónuveirusýkingu í gær og segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að það gæti verið til marks um að sjúkdómurinn sé að færast í aukana. Það sé þó ekki öruggt og á eftir að skýrast betur á næstunni. Þetta kom fram á upplýsingafundi um COVID_19 í dag.

Alls eru nú 250 smit staðfest hér á landi. Hafa 6.500 sýni verið tekin. Eitt prósent í sýnatöku hjá Íslenskri erfðagreiningu sýnir merki um smit en 10% þeirra sem greindir eru hjá Veirufræðideild Landstpítalans. Mjög mörg sýni voru tekin í gær og er því ekki víst að aukning í fjölda greindra sé til marks um aukna útbreiðslu sjúkdómsins heldur gæti ástæðan verið aukin sýnataka.

Veiran hefur nú greinst í sex landshlutum og er sóttkví í öllum landshlutum. Fimm manns eru inniliggjandi á Landspítalanum með veiruna, þar af eru tveir á gjörgæslu en ekki í öndunavél.

Níu manns er batnað af veirunni. Til að uppfylla þá skilgreiningu að teljast batnað þurfa að hafa liðið minnst tvær vikur frá sýkingu og viðkomandi þarf að hafa verið einkennalaus í viku.

Þórólfur segir ólíklegt að veikjast tvisvar af veirunni og telur í raun ósannað að það geti gerst. Er gengið út frá því hér að sami einstaklingur geti ekki veikst tvisvar af veirunni.

Þórólfur benti einnig á að neikvætt próf hjá ÍE geti veitt falskt öryggi því einkennalaust fólk geti verið með veiruna án þess að greinast með hana á þeirri stundu þegar sýni er tekið.

Tæpur helmingur þeirra sem hafa greinst með veiruna voru þegar í sóttkví þegar þeir greindust. Er það talið til marks um að aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi séu árangursríkar við að hefta útbreiðslu sjúkdómsins.

Nákvæm tölfæði um COVID-19 smit er að finna á vefnum covid.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima – Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning

Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima – Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur blandar sér í pólsku forsetakosningarnar – „Sterka framtíð fyrir Pólland“

Dagur blandar sér í pólsku forsetakosningarnar – „Sterka framtíð fyrir Pólland“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hóf framkvæmdir eftir jákvæða umsögn frá Reykjavíkurborg en síðan kom annað hljóð í strokkinn

Hóf framkvæmdir eftir jákvæða umsögn frá Reykjavíkurborg en síðan kom annað hljóð í strokkinn