Tveir kennarar við Kvennaskólann í Reykjavík hafa greinst með COVID-19, kona og karlmaður. Í gær staðfesti Hjalti Jón Sveinsson skólameistari í samtali við DV að kennari hefði smitast og væri um annars stigs smit að ræða, kennarinn hefði smitast af aðila sem hafði verið erlendis og komið sýktur til landsins. Allir nemendur ummrædds kennara eru í heimasóttkví.
Ekki er kennt í Kvennaskólanum frekar en öðrum framhaldsskólum á meðan samkomubanni stendur og skrifstofa skólans er lokuð
Í dag fékk DV síðan fréttir af því að annar kennari hefði greinst með kórónuveiruna og hafði kennt síðustu viku, að líkindum smitaður. Er sá kennari kominn í einangrun eins og sá fyrrnefndi og allir nemendur hans hafa verið beðnir um að fara í heimasóttkví.
Skólameistari hefur sent póst vegna síðarnefnda kennarans á tvo nemendahópa. Segir þar meðal annars:
„Í ljós hefur komið að einn kennara ykkar, sem kenndi ykkur síðastliðinn föstudag, 13. mars, hefur verið greindur með COVID-19 veiruna. Greiningin lá hins vegar ekki fyrir fyrr en í morgun. Af þeim sökum hef ég verið beðinn um að senda nemendum hans meðfylgjandi orðsendingu frá rakningarteymi Landlæknis, sem mun einnig fá excel-skjal með nöfnum viðkomandi nemenda.
Að beiðni/kröfu sóttvarnalæknis þurfa viðkomandi nemendur að fara í sóttkví frá og með föstudeginum 13. mars til föstudagsins 27., mars, þar sem þeir eru taldir hafa verið útsettir fyrir smiti vegna COVID-19 veirunnar.
Helstu einkenni COVID-19 sýkingar minna á venjulega flensu, hósti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Meltingareinkenni (kviðverkir, ógleði/uppköst og niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en þó þekkt.
Ef þú hefur eða færð fyrrnefnd einkenni á næstu 14 dögum, hvetjum við þig eindregið til að hafa samband við heilsugæslu, netspjallið á heilsuvernd.is eða vaktsíma 1700 með ofangreindar upplýsingar.”