Kennari við Klettaskóla hefur greinst með kórónuveirusýkingu. Af þessum sökum fellur skólahald við Klettaskóla niður um óákveðinn tíma.
Þetta er mjög alvarlegt þar sem skólinn sinnir nemendum með sérþarfir, þ.e. nemendum með þroskahömlun, væga þroskahömlun og viðbótarfatlanir, t.d. einhverfu, blindu, heyrnarleysi og alvarlega hreyfihömlun, að því er kemur fram í lýsingu á vef Reykjavíkurborgar.
Skólastjóri Klettaskóla, Árni Einarson, skýrir frá þessum tíðindum í bréfi til foreldra nemenda við skólann. Þar segir:
„Þær fréttir voru að berast að starfsmaður Klettaskóla var að greinast með kórónuveirusýkingu. Í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma.
Starfsemi frístundar fellur einnig niður um óákveðinn tíma.
Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfaði í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf.
Það verður því ekkert skólahald á morgun og ég mun fara yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis á morgun varðandi framhaldið og sendi ykkur nánari upplýsingar á morgun.“