Einn starfsmaður skrifstofu Alþingis hefur verið greindur með kórónuveirunnar. Þetta kemur fram á vef Alþingis.
Starfsmaðurinn hefur verið verið veikur og í sóttkví undanfarna daga. Hann er nú kominn í einangrun en er á batavegi.
Tveir starfsmenn skrifstofunnar eru í fyrirskipaðri sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við smitaða einstaklinga, en báðir þessir starfsmenn eru þó frískir. Þau sem viðkomandi starfsmenn áttu í samskiptum við innan Alþingishússins hafa verið upplýst um það.
Einhverjir þingmenn og starfsfólk eru í sjálfskipaðri sóttkví eða smitvari vegna aðstæðna, ýmist af persónulegum heilsufarsástæðum eða einhvers nákomins.