fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fréttir

Rut sendir ákall frá Ítalíu – „Í guðanna bænum takið veiruna alvarlega“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 17. mars 2020 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rut Valgarðsdóttir er Íslendingur sem býr í borginni Bergamó á Ítalíu sem hefur farið mjög illa í kórónuveirufaraldrinu. Í opinni Facebook-færslu lýsir Rut skelfilegu ástandi á Ítalíu þar sem opinberar tölur segja langt því frá alla söguna. Hún grátbiður Íslendinga að taka veiruna alvarlega. Viljinn greindi frá og vakti athygli okkar á þessu.

„Einu hljóðin sem við heyrum hér í einangruninni heima hjá okkur eru stöðug væl í sírenum sjúkrabílanna, dag og nótt, og við reynum að hugsa ekki um fólkið og söguna á bakvið hvern sjúkrabíl sem brunar hjá. Líklega brugðumst við of seint við..við vorum of lengi að átta okkur á því að veiran var hérna á meðal okkar,“ segir Rut.

Rut segir að aðeins þeir sem eru alvarlega veikir séu teknir í próf fyrir veirunni og tala smitaðra sé því mjög vanmetin. Hún sendir ákall til Íslendinga um að taka þessa veiru mjög alvarlega.

„Sumir telja jafnvel að erfið lungnabólgutilfelli sem komu upp í lok 2019 gætu hafa verið fyrstu kórónavírustilfellin,“ segir Rut en pistill hennar er eftirfarandi í heild:

Ég bý í Bergamo á Ítalíu. Í augnablikinu er bærinn best þekktur fyrir háa tíðni af sýktum með kórónavírusinn, þá hæstu í Evrópu. En númerin sem birtast opinberlega um sýkta og látna segja ekki allt. Heilbrigðiskerfið er þegar svo mettað hér hjá okkur að eingöngu þeir sem eru verulega alvarlega veikir eru testaðir fyrir veirunni. Jafnvel margir þeirra sem eru verulega alvarlega veikir þurfa að berjast fyrir læknishjálp, sumir deyja heima án þess að vera nokkurntíman testaðir því þeir ná ekki í gegnum filtrana sem eru settir til að forgangsraða hjálpina og aðrir kjósa að fara ekki á sjúkrahús því fólk sér það sem „one way ticket“ og deyja því í súrefnisnauð heima hjá sér. Það þekkja allir hér einhvern sem hefur misst einhvern eða sem er á gjörgæslu, það eru allir hræddir. Sjúkrahúsið í Bergamo er í stöðugum breytingum, almennum deildum hefur verið breytt í bráðadeildir, dagdeildum hefur verið lokað, sjúkrahúsið hefur ráðið aukastarfsfólk og herinn hefur lagt til lækna og hjúkrunafólk til að manna vaktirnar sem verða lengri og dramatískari eftir því sem á líður. Talsvert af starfsfólkinu hefur veikst sjálft. Sjukrahúsið er fullmettað af alvarlega veiku fólki sem þarf súrefni, sem er í einangrun, sem deyr án þess að hafa sína nánustu hjá sér. Jarðafarir eru óhugsandi, kistur hrannast upp og aðstandendur standa hjá lamaðir af sorg samblandaða við hræðsluna að smitast. Einu hljóðin sem við heyrum hér í einangruninni heima hjá okkur eru stöðug væl í sírenum sjúkrabílanna, dag og nótt, og við reynum að hugsa ekki um fólkið og söguna á bakvið hvern sjúkrabíl sem brunar hjá. Líklega brugðumst við of seint við..við vorum of lengi að átta okkur á því að veiran var hérna á meðal okkar -kannski var hún búin að vera enn lengur að dreifa sér hljóðlaust um héraðið en okkur grunaði, sumir telja jafnvel að erfið lungnabólgutilfelli sem komu upp í lok 2019 gætu hafa verið fyrstu kórónavírustilfellin. FB vinir, í guðanna bænum takið veiruna alvarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Viðskiptavinur Krónunnar fékk yfir sig harða gagnrýni – „Skammastu þín“

Viðskiptavinur Krónunnar fékk yfir sig harða gagnrýni – „Skammastu þín“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur vann 54 milljónir um helgina – „Ég er bara ekki enn að trúa þessu“

Íslendingur vann 54 milljónir um helgina – „Ég er bara ekki enn að trúa þessu“
Fréttir
Í gær

Séra Svavar um fánamálið – „Kynþáttahatarar hafa fylkt liði undir logandi krossum og gera enn“

Séra Svavar um fánamálið – „Kynþáttahatarar hafa fylkt liði undir logandi krossum og gera enn“
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi með áhugaverða hugmynd: „Er það ekki þess virði að prófa?”

Guðmundur Ingi með áhugaverða hugmynd: „Er það ekki þess virði að prófa?”