Í leiðaranum talar Kristjón um Magnús Scheving, sem var í þessari sömu flugvél. „Þegar heim var komið fór hann beint í sjálfskipaða sóttkví uppi í sumarbústað þrátt fyrir að vera hvorki smitaður né skikkaður til að yfirgefa samfélag manna í fáeinar vikur. Magnús tók þessa ákvörðun með aðra en sjálfan sig í huga,“ segir Kristjón.
Kristjón segir Fréttablaðið hafa óskað eftir viðtali við viðskiptajöfurinn sem um ræðir. Sá lét skýrt í ljós að hann hefði engann áhuga á að ræða við blaðamann. „Í gegnum skvaldur og diskaglamur kvaðst hann vera úti að borða og áður en hann sleit samtalinu viðurkenndi hann þó að hafa verið í sömu vél,“ segir Kristjón. Viðskiptajöfurinn sagði einnig að honum hefði ekki verið gert að fara í sóttkví.
„Ekki ætla ég að draga það í efa,“ segir Kristjón. „Og ekki var maðurinn að brjóta nein lög með því að bregða sér á veitingastað. Þetta er spurning um tillitssemi og virðingu fyrir öðrum, samborgurunum. Sérgæskan gerir fólk blint á að það er ekki stærra en heildin. Flest þekkjum við dæmi um fólk sem þannig hefur sig yfir allt samfélagið. Stundum ómeðvitað en alls ekki alltaf.“
Eftir að samkomubannið sem hefst á mánudaginn var tilkynnt hefur lítið annað verið á vörum landsmanna. „Bannið mun takmarka athafna- og ferðafrelsi okkar en það byggir á ráðum sérfræðinga. Okkur ber öllum að lúta þessum nýju og um margt óþægilegu reglum,“ segir Kristjón. „Vegna þess að annars ógnum við heilsu fólks í kringum okkur og tefjum fyrir bata samfélagsins alls.“
Undir lok pistilsins leggur Kristjón áherslu á mikilvægi samstöðu á þessum tímum. „Fram undan eru erfiðir tímar og samstaðan er aldrei mikilvægari en þá. Ekki tala niður til sérfræðinga. Við þurfum öll að ganga í almannavarnaliðið eins og forsætisráðherra sagði. Styðjum hvert með jákvæðni og samheldni að vopni, því óttinn stækkar aðeins skuggann.“