„Hey, ég vinn hjá Spotify,“ sagði notandinn og hélt áfram. „Þetta þýðir að lagið þitt er það fimmta mest deilda í heiminum í dag! Síðan held ég líka að þetta þýðir að þú vinnir Eurovision, sama hvað gerist í kosningunum sjálfum.“ Það má því segja að Daði sé að vekja heimsathygli þar sem það kemst ekki hver sem er inn á þennan vinsældarlista. Þegar þessi frétt er skrifuð er Think About Things komið með tæplega tvær milljónir hlustana á Spotify. Þá hefur tónlistarmyndbandið fengið rúmlega 2,6 milljón áhorf á YouTube.
Fólk úr öllum áttum kepptust við að svara spurningu Daða líka. „Þetta þýðir að þú ert formlega orðinn að goðsögn,“ sagði einn notandi og fjöldinn allur sagði að þetta þýðir ekkert annað en að hann sé að fara að vinna Eurovision.
Þá fer umræðan undir tístinu einnig út í COVID-19, enda fátt annað á vörum heimsins um þessar mundir. „Þetta þýðir að það er verið að deila laginu þínu hraðar en COVID-19,“ sagði Steini nokkur. „Þetta þýðir greinilega að tónlistin þín mun bjarga okkur frá kórónuveirunni,“ sagði annar notandi.
What does this mean?!? pic.twitter.com/YXFGiUThCj
— Daði úr Júróvisjón 🥑 (@dadimakesmusic) March 13, 2020