Kennarinn sem um ræðir veiktist fyrr í vikunni en kom ekki í skólann síðari part vikunnar. FSu var opinn í gær en vegna samkomubannsins verður skólanum lokað næstu fjórar vikur. Almannavarnir vinna nú að því að rekja smitið og hafði skólinn samband við þá aðila sem kennarinn hafði samskipti við í vikunni.
90 nemendur og 6 starfsmenn í skólanum eru því nú komnir í sóttkví eftir greiningu smitsins. Kom þetta fram í öðrum tölvupósti sem Olga sendi í gærkvöldi. Í þeim pósti ítrekar Olga mikilvægi þess að þeir sem verða varir við einkenni COVID-19 hafi samband við heilbrigðisstarfsmenn á næstu heilsugæslu eða í síma 1700.
FSu er þriðji framhaldsskólinn á landinu sem grein hefur frá því að þar hafi COVID-19 smit komið upp. Fyrr í vikunni var greint frá því að starfsmaður í Borgarholtsskóla hafi fengið veiruna og nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð sömuleiðis. Samkomubannið tekur gildi á mánudaginn og verður framhaldsskólum landsins lokað næstu fjórar vikur vegna þess.