fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Kári vonast til að fá fyrstu niðurstöðurnar í kvöld – „Það er smá mögu­leiki að þetta þjappi okk­ur sam­an sem sam­fé­lagi“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 14. mars 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði í samtali við Morgunblaðið að „ef allt gangi eins og í lygasögu“ þá munu niðurstöður úr fyrstu sýnatökunni fást í kvöld.

„Það sem mér finnst flott­ast af öllu er það hvernig þetta fólk sem vinn­ur hjá mér í Íslenskri erfðagrein­ingu tekst á við þetta. Það verður unnið alla helg­ina, það verður byrjað að greina þessi 500 sýni á miðnætti hjá okk­ur og síðan verður unnið í alla nótt,“ sagði Kári og bætti við að fólk sé að gera þetta af eigin hvötum. „Það hef­ur eng­inn beðið það um að vinna á nótt­unni eða um helg­ar. Það bara kem­ur og ætl­ar að gera þetta.“

Kári segir þá að kannski geti faraldurinn haft sýnar jákvæðu hliðar og bendir á að hann gæti þjappað okkur saman. Kannski kom­um við út úr þess­ari far­sótt með minni efn­is­hyggju og meiri vænt­umþykju hvert fyr­ir öðru. Þetta hljóm­ar nátt­úr­lega eins og ég sé róm­an­tískt „leftover“ frá sjö­unda ára­tugn­um en ég er það,“ segir hann.

„Það er smá mögu­leiki að þetta þjappi okk­ur sam­an sem sam­fé­lagi. Að minnsta kosti þegar horft er á þetta fólk sem er að tak­ast á við þenn­an far­ald­ur. Það eru all­ir reiðubún­ir til þess að gera allt milli him­ins og jarðar. Það spyr eng­inn: „hversu lengi þarf ég að vinna“ eða „fæ ég borgað fyr­ir þetta“. Það eru bara all­ir að demba sér út í þetta af full­um krafti.“

Markmiðið er að ná að taka 1000 sýni á dag samkvæmt Kára en til þess þarf 50 manns í þjónustumiðstöð. „50 starfs­menn vinna þar en tíu þeirra gátu ekki unnið yfir helg­ina vegna þess að þau eiga lít­il börn þannig að það var hringt í tíu starfs­menn sem vinna í Íslenskri erfðagrein­ingu í Vatns­mýr­inni og hver ein­asti sem var beðinn var reiðubú­inn til þess að koma,“ segir Kári. „Ég á ekki orð yfir það hvað mér finnst þetta flott fólk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð