Ríkisstjórnin hefur ráðist í ýmsar skammtímaaðgerðir til að létta fyrirtækjum róðurinn í gegnum brotsjói COVID-19. Þannig verður fyrirtækjum sem lenda í tímabunrnum rekstrarörðugleikum veitt svigrúm til að fresta skilum á sköttum og opinberum gjöldum.
Jack Hrafnkell Daníelsson, sem heldur úti vefnum skandall.is, spyr hvar séu aðgerðir til að létta öryrkjum lífið í gegnum þá kreppu sem skollin er á.
Jack er reyndar með nákvæmar hugmyndir um hvað hann vill að ríkisvaldið geri og setur þær fram í opnu bréfi til ríkisstjórnarinnar. Jack vill þetta: „Fellið niður alla skatta af greiðslum úr almannatryggingum þannig að allar bætur almannatrygginga verði skattfrjálsar.“
Jack segir að þetta geti ekki kostað meira en ívilnanir sem ríkisstjórnin veitir fyrirtækjum. Hann skrifar:
„En fyrst ríkissjóður er allt í einu svo efnaður að það er hægt að fella niður tug ef ekki hundruð milljóna skatttekjur sem annars kæmu í ríkissjóð þá hlýtur að vera hægt að koma til móts við öryrkja og aldraða með mjög einföldum hætti. Svo einföldum að meira að segja bæði ráðherrum og þingmönnum landsins ætti að vera það ljóst þrátt fyrir að vitið sé alla jafna ekki mikið að þvælast fyrir þeim, það þarf bara viljan til að framkvæma það og ætti ekki að taka meira en tvo til þrjá daga, mesta lagi viku ef rétt er að staðið.“