Samtök áhugafólks um spilafíkn og Neytendasamtökin skora á Háskóla Íslands, Happdrætti Háskóla Íslands og eigendur Íslandsspila sf, Rauða krossinn á Íslandi, Slysavarnafélagið Landsbjörg og SÁÁ að loka öllum spilakössum tímabundið vegna mögulegrar smithættu á COVID-19 og draga þar með úr smitleiðum á meðan hættuástand varir samkvæmt Embætti landlæknis.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum og þar segir einnig: „Þeim sem ætluðu að leggja þessum stofnunum og samtökum lið með spilun í spilakössum er bent á heimasíður viðkomandi varðandi reikningsnúmer.“
Meðal þeirra sem skrifa undir áskorunina eru formaður ASÍ og formaður VR, en undirritunin er svona:
F.h. Samtaka áhugafólks um spilafíkn, SÁS Alma Hafsteins, formaður
F.h. Neytendasamtakanna
Breki Karlsson, formaður
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR