Allt flug Icelandair til Danmerkur er á áætlun þrátt fyrir að dönsk yfirvöld hafi gefið það út að landamærunum að Danmörku verði lokað á hádegi á morgun vegna COVID-19 veirunnar. Icelandair flýgur tvisvar á dag til Danmerku. Annað flug Icelandair til Danmerkur á morgun er fyrir hádegi en hitt er eftir hádegi. Samkvæmt því sem Ásdís Ýr Pétursdóttir upplýsingafulltrúi Icelandair segir við mbl.is hafa engar breytingar verið gerðar áætlun flugfélagsins. Hefur Icelandair óskað eftir ítarlegri upplýsingum frá dönskum stjórnvöldum um lokun landamæranna.
Pólverjar hafa lokað landamærum sínum frá með sunnudeginum samkvæmt upplýsingum frá pólskum ríkisborgara til DV. Öll flug og lestarferðir til landsins munu stöðvast í tíu daga. Pólverjar sem koma heim frá öðrum löndum fara í 14 daga sóttkví. Samkomubann er í gildi í landinu fyrir 50 manns eða fleiri. Verslunarmiðstöðvar, veitingastaðir og kaffihús hafa lokað.
Strætisvagnar í Póllandi keyra alla daga samkvæmt sunnudagsáætlun. Gler er haft milli bílstjóra og farþega.