fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

„Samhent og samstíga munum við komast í gegnum þetta“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 12. mars 2020 18:21

Sigríður Björk Guðjónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Björk Guðjónsdóttir var í dag skipuð í embætti ríkislögreglustjóra af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Sigríður hefur nú opnað sig um ráðninguna og segist hún vera þakklát og hrærð fyrir traustið.

„Það er vissulega nokkuð sérstakt að taka við hlutverkinu á þeim óvissutímum sem nú ríkja. Embætti Ríkislögreglustjóra og starfsmenn þess hafa verið fremstir í flokki, með öðrum viðbragðsaðilum, við að greina, bregðast við og miðla upplýsingum um útbreiðslu og viðbrögð við kórónaveirunni síðustu daga og vikur,“ segir Sigríður í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Fumlaus viðbrögð almannavarna hafa ekki síst stuðlað að því að róa fólk og skapa traust á getu okkar til að takast á við þetta stóra verkefni. Víða í samfélaginu fer nú fram fórnfúst starf, viðbragðsstjórnir eru myndaðar á vinnustöðum og samtakamátturinn er mikill. Fyrir alla þá fjölmörgu sem tilheyra fremstu línu viðbragða, samhæfingu almannavarna eða ýmsum mikilvægum bakvarðasveitum er gott að skynja traustið frá almenningi. Þetta hef ég fundið á mínu fólki undanfarna daga. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er hluti af viðbragðsteyminu í samhæfingarmiðstöðinni og ég get fullvissað fólk um að við erum fyllilega tilbúin að takast á við hin mörgu fjölþættu verkefni sem leysa þarf á næstunni. Samhent og samstíga munum við komast í gegnum þetta.“

Sigríður segir að þó hún sé full eftirvæntingar þá sé það erfitt að yfirgefa sinn gamla vinnustað, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. „Það er huggun harmi gegn að starfsfólk þessara tveggja embætta vinnur náið saman í störfum sínum og enn fleiri tækifæri munu gefast til samstarfs,“ segir hún.

Þá minnist Sigríður þess þegar hún hóf störf sem skattstjóri á Vestfjörðum, 27 ára gömul. Hún segir það yfirleitt hafa fallið í hennar hendur að taka þátt í breytingum á verkefnum þeirra vinnustaða sem hún hefur verið á.

„Lögreglan á að vera þjónustustofnun og þarf að njóta trausts borgaranna sem hún þjónar. Um leið þurfa aðstæður, kjör og vinnuumhverfi lögreglumanna að vera góð svo að lögreglan geti verið ávallt til staðar þar sem hennar er þörf. Líkt og það stóra verkefni sem við höfum staðið frammi fyrir síðustu vikur sýnir hvað best þá skiptir fumlaus samvinna margra aðila, stofnana og almennings, öllu máli þegar tryggja á landsmönnum öruggt og heilsusamlegt umhverfi. Ég tek þá ábyrgð sem mér er falin mjög alvarlega og lofa að gera mitt besta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“