fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Heimkaup tilkynnir um aðgerðir gegn COVID-19

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. mars 2020 16:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netverslun færist nú mjög aukana vegna ótta við smit kórónuveirunnar. Meðal fyrirtækja sem hafa treyst sig mjög í sessi í netverslun er Heimkaup.is. Fyrirtækið hefur nú sent frá sér ítarlega tilkynningu þar sem farið er yfir aðgerðir og verklag vegna COVID-19.

Tilkynningin er eftirfarandi:

„Heimkaup.is er eina matvöruverslun landsins sem hvorki viðskiptavinir né birgjar hafa beinan aðgang að. Viðskiptavinir kaupa allt í gegnum vefinn og fá sent heim og birgjar skilja vörurnar eftir í vörumóttökunni. Þetta þýðir að Heimkaup.is getur betur stýrt sínu umhverfi en nokkuð annað íslenskt fyrirtæki á matvörumarkaði.

Við tökum hlutverk okkar á þessum tímum alvarlega og höfum gripið til eftirfarandi aðgerða í samráði við sérfræðinga fyrirtækisins, Vinnuvernd ehf.

Aðgerðirnar eru gerðar til þess að tryggja öryggi starfsmanna og ekki síður viðskiptavina!

 

Fræðsla:

  • Allt starfsfólk hefur hlotið fræðslu í smitleiðum o.fl. sem tengis COVID 19 hjá Vinnuvernd.

Uppskipting mannafla:
Hingað til hefur allt starfsfólk Heimkaup.is unnið í vöruhúsinu að Smáratorgi 3. Á meðan ástandið varir hefur verið farið í eftirfarandi aðgerðir.

  • Ekkert skrifstofufólk vinnur í vöruhúsi Heimkaup.is
    Þetta fólk vinnur nú ýmist heiman frá sér eða á skrifstofu sem var leigð sérstaklega fyrir þá sem ekki áttu gott með að vinna heiman frá sér.

 

  • Öllu starfsfólki í vöruhúsi og akstri skipt upp í tvær vaktir þar sem enginn á A-vakt á samneyti við fólk á B-vakt.

Þrif milli vakta skipulögð m.t.t. ástandsins:
Breytingar hafa verið gerðar á þrifum á vöruhúsinu þannig að nú er bæði þrifið oftar og þau sérhæfð m.t.t. aðstæðna:

  • Þrifið milli allra vaktaskipta.
  • Sérhæfð þrif þar sem áhersla er lögð á alla snertifleti:
    • Hurðarhúnar og ljósarofar
    • Handföng (ísskápar og aðrar hirslur sem gengið er um)
      • Kaffi og vatnsvélar
      • Hurðar
      • Uppþvottavél
      • Sápuskammtarar
    • Önnur eldhúsáhöld s.s. teketill, brauðrist og samlokugrill.
      • Verkfæri eins og hnífar, límbyssur o.fl.
      • Snertiskjáir, mýs og lyklaborð.
      • Handföng á vögnum og kerrum.
      • Handföng og bök á stólum, borð og bekkir.

 

 

 

Engar heimsóknir eða fundir í vöruhúsi Heimkaup.is:

  • Engar heimsóknir vina eða vandamanna í vöruhúsið leyfðar.
  • Allir fundir skrifstofufólks fara fram á skrifstofunni sem leigð hefur verið fyrir utan vöruhúsið.

 

Handþvottur:
Veiran smitast með snertismiti og dropasmiti. Snertismit og er algengasta smitleiðin og allt starfsfólk þvær hendur skv. eftirfarandi reglum:

  • Þegar mætt er til vinnu (sápa og spritt).
  • Áður en tekin er upp handskanni og þegar hann er settur niður (spritt).
  • Þegar farið er í og úr matar eða kaffipásu (sápa og spritt).
  • Þegar farið er á salerni (sápa og spritt).
  • Áður en farið er út í bíl (sendlar).

Leiðbeiningar um handþvott eru sýnilegar alls staðar þar sem fólk þvær sér um hendurnar.
Þeim tilmælum beint til starfsfólk að vera ekki með óþarfa skraut á höndum og þvo vel undir hringum eins og giftingar- og trúlofunarhringjum.

Hendur geta orðið sárar við svona mikinn þvott og því er nærandi handáburður í boði fyrir alla starfmenn.


Allir sendlar nota einnota hanska:

  • Sendlar setja á sig einnota hanska áður en farið er með pöntun til viðskiptavinar.
  • Hanskar eru fjarlægðir áður en farið er inn í bíl og þeir settir í þar til gerðan ruslapoka
  • Spritt borið á hendur þegar sest er undir stýri.
  • Nýir hanskar settir á við næsta stopp.
  • Ruslapokum hent í lok dags í tunnur sérstaklega ætlaðar fyrir umrædda hanska.

Engin snerting við viðskiptavini:

Bílstjórar okkar hafa í gegnum tíðina stundum farið með poka alla leið inná eldhúsborð viðskiptavina. Meðan ástandið varir getum við ekki veitt þessa þjónustu.  Þeir munu því dingla og/eða banka, setja pöntunina niður fyrir utan íbúð/útidyrnar, taka 1-2 skref aftur á bak og bíða þess að viðskiptavinurinn komi til dyra.

Margnota innkaupapokar:

  • Við tökum ekki við margnota innkaupapokum á meðan ástandið varir.

 

Sameiginlegt mötuneyti á 19 hæð á Smáratorgi 3 ekki notað:

  • Fleiri hundruð manns nota mötuneytið og starfsfólk Heimkaup.is mun ekki nota það á meðan ástandið varir.

Að auki er þeim tilmælum beint til starfsmanna að passa að verja sig utan vinnutíma og leggja ekki í óþarfa ferðlög og að sjálfsögðu að halda sig heima ef þeir finna fyrir einhverjum einkennum. Ef það er grunur um smit skal hringja í 1700 (24 tíma) eða heilsugæslu á dagvinnutíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“