fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Tryggingastofnun lokar afgreiðslunni vegna kórónuveirunnar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. mars 2020 17:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tryggingastofnun ríkisins (TR) hefur nú lokað afgreiðslu sinni á meðan neyðarstig Almannavarna vegna COVID-19 varir og býður þess í stað upp á aukna fjarþjónustu. Beinir stofunin því til aldraðra og þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma að forðast margmenni.

Tilkynning um þetta frá TR er eftirfarandi:

TR býður upp á aukna fjarþjónustu fyrir viðskiptavini sína við þær aðstæður sem nú hafa skapast í samfélaginu vegna COVID-19. Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarstigi og beinir sóttvarnarlæknir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að forðast margmenni.

Í viðskiptavinahópi TR teljast margir til viðkvæmra hópa og leggur TR því áherslu á að efla fjarþjónustu á meðan neyðarstig varir. Er þetta gert með velferð viðskiptavina að leiðarljósi.

Afgreiðsla TR var lokað í dag, en starfsemi TR verður að öðru leyti óbreytt og mánaðarlegar greiðslur munu berast viðskiptavinum eins og venjulega.

Viðskiptavinum er bent á nokkrar þjónustuleiðir:

Mínar síður, sem eru alltaf aðgengilegar. Þar er m.a. hægt að sækja um allar bætur og breyta tekjuáætlun. Hægt er að setja fylgigögn með umsóknum beint inná Mínar síður, einnig er hægt að senda fyrirspurnir til TR sem er svarað í tölvupósti. Til að komast á Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.

Símaver TR er opið frá kl. 9.00 til 15.00, s. 560 4400. Þar er m.a. veitt aðstoð og ráðgjöf til að komast inn á Mínar síður auk þess sem allar upplýsingar er varða bætur og lífeyrisgreiðslur eru veittar.

Netfangið tr@tr.is . Öllum fyrirspurnum er svarað svo fljótt sem auðið er.

Heimasíða tr.is. Þar eru allar nauðsynlegar upplýsingar um bótaflokka og greiðslur. Einnig er bent á spurningar og svör við algengum spurningum.
Reiknivélin. Í reiknivélinni á heimasíðu TR er hægt að reikna út mögulegar greiðslur með mismunandi forsendum.

Bréfpóstur. Ef ekki er unnt að nota rafræn samskipti eða hringja er hægt að senda bréf í pósti. Einnig er póstkassi í Hlíðasmára 11 þar sem hægt er að skila gögnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“