fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Læknir hefur þungar áhyggjur af stefnunni varðandi COVID-19 – „Inga Sæland er miklu nær því að vera á línu WHO en stjórnvöld“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. mars 2020 21:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virtur íslenskur læknir, sem ekki vill láta nafns síns getið, hefur leitast við að koma í dreifingu bréfi sem hann hefur skrifað þar sem hann viðrar þungar áhyggjur sínar af stefnu Landlæknis, Sóttvarnalæknis og Almannavarna varðandi heftingu á útbreiðslu kórónuveirunnar.

Þekktur vísindamaður utan læknavísindanna kom bréfinu í hendur ritstjórnar DV.

Í bréfinu virðar læknirinn þungar áhyggur af þeirri tilhneigingu ofangreindra aðila til að forðast það að hræða almenning. „Fyrir 12-15 árum síðan fylgdu stjórnvöld þeirri línu að það væri best fyrir almenning þessa lands að fá ekkert að vita, hann mætti ekki panikera; það reyndust hörmuleg mistök. Þessi vernd, að hræða ekki almenning með óþægilegum staðreyndum, liggur hættulega nálægt því að vera gamaldags forræðishyggja, líkt og þegar krabbameinsveikir sjúklingar fengu áður fyrr ekki að vita að þeir væru krabbameinsveikir,“ skrifar læknirinn í bréfi sínu og virðist þarna vera að vísa til aðdraganda bankahrunsins árið 2008.

Næmni greiningarprófa sé aðeins 70%

Læknirinn dregur enn fremur fram þá óþægilegu staðreynd að næmni greiningarprófa á kórónuveirunni sé aðeins 70%. „Ef þessi tala, 70%, er rétt þá eru núna 26 manns á Íslandi sem ranglega hafa verið sagðir ósýktir að smita 2-3 einstaklinga hver,“ segir læknirinn.

Læknirinn víkur að Ingu Sæland og gagnrýninni sem hún hefur mátt þola fyrir harkalegar yfirlýsingar sínar um veiruna:

„Ég hef rannsakað hjarta mitt og fundið að ég hef haft fordóma gagnvart Ingunum Sæland þessa lands sem þykjast vita meira heldur en sérfræðingarnir, hvílíkur hroki. -Samt, Inga Sæland er miklu nær því að vera á línu WHO heldur en stjórnvöld; WHO hvetur, m.a. Ísland, til þess að gripið verði til jafn harkalegra aðgerða og í Kína.“

Lækninum er mikið niðri fyrir og hann hvetur eindregið til þess að farið verði að ræða útbreiðslu COVID-veirunnar á hreinskilnislegri hátt en hingað til hafi verið gert. Ef sú umræða verði tekin of seint muni það leiða til mikillar reiði almennings.

Bréfið birtist hér fyrir neðan í heild sinni:

Landlæknir, Sóttvarnarlæknir og Almannavarnir eru nú í þeirri erfiðu aðstöðu að þurfa að taka mjög afdrifaríkar og íþyngjandi ákvarðanir fyrir alla landsmenn. Það er ekkert að því að vera ósammála viðhorfum og ákvörðunum þeirra en aðstaða þeirra er nógu erfið nú þegar þótt ekki sé verið að íþyngja þeim með reiði og ómaklegum árásum. Menn verða að glíma við sína hræðslu og reiði, sem oft er sami hluturinn, á annan hátt en að taka það út á þessum aðilum. Hins vegar er alveg nauðsynlegt að þeir sem eru ósammála þeirri línu sem „sóttvarnarlandlæknir“ og Almannavarnir hafa fylgt, að þeir færi góð rök fyrir sínum skoðunum og komi með staðreyndir sem þroski umræðuna. Það er ekkert að því að fólk, líka leikmenn, viðri þá skoðun sína að þeir séu ósammála þeirri stefnu sem opinberir aðilar fylgja í dag, færi þeir góð rök fyrir því.

Þegar sá faraldur sem núverandi faraldri er helst líkt við, Spænska veikin, kom til Englands á sínum tíma, þá ákváðu yfirvöld að veita takmarkaðar upplýsingar og grípa ekki til róttækra aðgerða. Sóttvarnarlæknir Manchester var ósammála og lokaði skólum og skemmtistöðum í trássi við vilja yfirvalda; í dag er talið að hann hafi bjargað ógrynni mannslífa og hafi verið sá sem hegðaði sér skynsamlega. Enginn, hvorki yfirvöld né gagnrýnendur, vita fyrr en eftir a.m.k. eitt ár hvort sú lína sem yfirvöld hér á landi fylgja í dag sé rétt eða röng. En er einhver lína hér á landi?

Ef fylgst er með fjölmiðlum í nágrannalöndunum hlýtur maður að verða þeirrar skoðunar að mikið kapp virðist vera lagt á það hérlendis að „hræða ekki almenning“. Í breskum fjölmiðlum hefur t.d. komið fram að dánartíðni af völdum Covid-19 veirunnar er a.m.k. tíu sinnum hærri en af völdum influensu og að Covid sé meira smitandi heldur en influensa. 600.000 manns látast í influensufaröldrum og þá má gera ráð fyrir að meira en 10 milljónir manns látist úr Covid. Í fréttatíma norska sjónvarpsins í kvöld kom fram að greind smit væru í veldisvexti og fylgdu nákvæmlega kúrfu sem benti til þess að milljónir manna myndu smitast. Viðtöl eru birt við norska svæfingalækna sem segjast vinna eftir þeirri áætlun að ekki verði pláss fyrir alla þá sem þyrftu að komast á gjörgæslu og að ekki verði nægilega margar öndunarvélar í landinu. Sýndir eru þættir í Danmörku um hrylling Spænsku veikinnar og í öðrum nágrannalöndum eru sýndir margir þættir þar sem ekkert er dregið undan. Undirritaður hefur ekki séð slíka þætti hérlendis, þótt, (eða kannske vegna þess?) að smit sé margfalt meira á Íslandi heldur en í þessum löndum. Fyrir 12-15 árum síðan fylgdu stjórnvöld þeirri línu að það væri best fyrir almenning þessa lands að fá ekkert að vita, hann mætti ekki panikera; það reyndust hörmuleg mistök. Þessi vernd, að hræða ekki almenning með óþægilegum staðreyndum, liggur hættulega nálægt því að vera gamaldags forræðishyggja, líkt og þegar krabbameinsveikir sjúklingar fengu áður fyrr ekki að vita að þeir væru krabbameinsveikir. Ég hef rannsakað hjarta mitt og fundið að ég hef haft fordóma gagnvart Ingunum Sæland þessa lands sem þykjast vita meira heldur en sérfræðingarnir, hvílíkur hroki. -Samt, Inga Sæland er miklu nær því að vera á línu WHO heldur en stjórnvöld; WHO hvetur, m.a. Ísland, til þess að gripið verði til jafn harkalegra aðgerða og í Kína.

Ég sjálfur hef þá óbifandi sannfæringu að ég sé ódauðlegur og að ekkert geti komið fyrir mína nánustu og að allt muni reddast. Það er neyðarlegt fyrir t.d. mig, sem er doktor í faraldsfræði, að hvorki ég, nokkur sóttvarnarlæknir, faraldsfræðingur, prófessor í læknisfræði né fræðasamfélagið yfir höfuð, hefur vakið nógsamlega athygli á þeirri lykilstaðreynd sem öll vitræn umræða um faraldurinn hlýtur að byggjast á, nefnilega að næmni greiningarprófa er aðeins 70%! Þessi staðreynd kom þvert á móti frá gagnrýnanda sem er á öndverðum meiði við núverandi stefnu í sóttvarnarmálum og fannst hann verða að tjá sig um það. Ef þessi tala, 70%, er rétt þá eru núna 26 manns á Íslandi sem ranglega hafa verið sagðir ósýktir að smita 2-3 einstaklinga hver. Þetta sýnir ótvírætt gildi frjálsrar, opinnar umræðu þar sem hvatt er til að óhikað viðra allar hliðar málsins -og ólíkar skoðanir, líkt og nágrannaþjóðum okkar virðist takast betur upp heldur en okkur. Ég hvet fjölmiðla til þess að hafa umræður milli lækna þar sem ræddar eru hinar mismunandi skoðanir sem finnast innan læknasamfélagsins um hvernig taka eigi að á Covid veirunni. Ef þessi umræða er tekin of seint þá mun það bara leiða til reiði síðarmeir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“