fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

Kennari í Borgarholtsskóla greindist með COVID-19 um helgina – Kenndi nemendum á fimmtudaginn

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 9. mars 2020 10:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kennari við Borgarholtsskóla hefur verið greindur með COVID19. Sendur var út póstur á nemendur og forráðamenn vegna þessa en Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, staðfesti þetta í samtali við DV.

Ársæll segist hafa verið í miklu sambandi við sóttvarnaryfirvöld varðandi hvort að nemendur þyrftu að fara í sóttkví. „Sérfræðingar telja ekki þörf á því að nemendur eða samstarfsfólk fari í sóttkví vegna þessa,“ segir í tilkynnningunni frá skólanum vegna málsins.

„Sóttvarnaryfirvöld fullvissuðu mig um að á fimmtudagsmorgni væri hún ekki byrjuð að smita því einkenni koma ekki fram fyrr en á laugardegi,“ segir Ársæll í samtali við DV. „Það er einn dagur þarna á milli sem er alveg einkennalaus og þar af leiðandi er kennarinn ekki farinn að smita þá. Hún var ekki í neinum tengslum við nemendur eða starfsfólk skólans á föstudegi eða laugardegi.“

Að lokum undirstrikar Ársæll mikilvægi þess að svona smit séu tilkynnt tafarlaust. „Það er bara þannig sem samfélagið verður að virka, bara hafa allt uppi á borðinu. Þess vegna var þessi póstur sendur strax, kennarinn greindist bara klukkutíma á undan.“

Tilkynninguna frá skólanum má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Áhrif COVID19 veikinnar halda áfram að hafa áhrif á okkar daglega líf og störf okkar í Borgarholtsskóla.

Nú í dag hefur fyrsta smit COVID19 greinst hjá kennara skólans en skv. sérfræðingum er mjög ólíklegt að viðkomandi kennari hafi smitað nemendur og samstarfsfólk þar sem kennarinn var ekki við kennslu eða í skólanum frá hádegi á fimmtudegi. Viðkomandi kennari heitir XXX XXXX og áfangarnir sem hún kenndi sl. fimmtudag eru ÍSL3AO5(1), ÍSL2A05(1) og ÍSL1A05(1). Sérfræðingar telja ekki þörf á því að nemendur XXXX eða samstarfsfólk fari í sóttkví vegna þessa en auðvitað eiga allir að fylgjast grannt með einkennum flensu og hafa strax samband við sérfræðinga í síma 1700 eða hringja í heilsugæsluna ef vart verður við slík einkenni. Forfallakennari mun koma til kennslu fyrir XXXX næstu 2 vikurnar.

Almennt gildir að mæta ekki í skólann með kvef eða önnur einkenni sem svipar til einkenna kórónaveirunnar. Þá treysti ég því að nemendur sem eiga að vera í sóttkví skv. tilmælum landlæknis haldi sig í sóttkví. Ef nemandi er að koma frá útlöndum og er í vafa um hvort rétt væri að fara í sóttkví vil ég hvetja til þess að hringt sé í símanúmerið 1700 og fengin ráðgjöf um það áður en þú mætir í skólann.

Það er mjög mikilvægt að við hjálpumst öll að við að hægja á útbreiðslu veirunnar. Við erum öll ábyrg. Það er mikilvægt að þið látið okkur vita bhs@bhs.is ef þið smitist eða þurfið að sæta sóttkví en skólinn mun leita allra leiða til að nemendur nái að halda dampi í náminu.

Ég vil ítreka við ykkur að fylgjast vel með tilmælum landlæknis en nýjustu upplýsingar má finna hverju sinni hér https://www.landlaeknir.is/koronaveira/. Um helgina komu út leiðbeiningar fyrir einstaklinga með áhættuþætti vegna COVID-19 sem ég hvet ykkur til að kynna ykkur en þær má finna á ofangreindri vefsíðu.

Breytingar verða frá og með morgundeginum á hafragrautnum góða á morgnana en nú verður ha nn skammtaður frá mötuneytinu í stað þess að nemendur skammti sér sjálfir. Ég bið nemendur að vanda handþvott og forðast knús og handabönd sem eru helstu smitleiðirnar.

Hikið ekki við að hafa samband við stjórnendur skólans ef spurningar vakna.

Kveðja, Ársæll Guðmundsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd