fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Fleiri munu smitast og fólk gæti veikst meira: „Við megum ekki láta veiruna yfirtaka allt“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. mars 2020 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öll skíðasvæði í Ölpunum eru nú talin til áhættusvæða og allir sem þaðan koma eiga að fara í sóttkví og er þeim tilmælum er beint til almennings að vera ekki að ferðast til þessara svæða að óþörfu.

Þetta kom fram á upplýsingafundi Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra með fjölmiðlum vegna COVID-19 en fundinn sátu Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, Alma D. Möller, landlæknir, Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir og María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráðuneytisins, og fóru þau yfir stöðu mála.

Alma hvetur samfélagið til stillingar og brýnir fyrir fólki að láta ekki hjá líða að leita sér nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu.

Smitin orðin 60

Fyrr í dag greindu Almannavarnir frá tveimur nýjum smitum kórónuveirunnar sem gerir staðfest tilfelli af COVID-19 sjúkdóminum á Íslandi 60 talsins, þar af flokkast 10 sem innanlandssmit. Bæði nýju tilvikin eiga rætur að rekja til flugs frá Veróna á Ítalíu sem lenti á laugardaginn. Alls hafa fimm farþegar flugsins greinst með veiruna.

Smitin á Íslandi má rekja til Norður Ítalíu eða 27 smit, 22 má rekja til Austurríkis og 1 til Asíu. Síðan eru 10 innanlandssmit en þau má rekja þó til umgengni við einstaklinga sem smitaðir voru eftir ferðalög.

„Við megum ekki láta veiruna yfirtaka allt. Við verðum að vera yfirveguð og halda áfram að leita eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu,“ sagði Alma á fundinum áðan. Hún hvetur fólk til að afpanta ekki læknisheimsóknir nema í samráði við lækna. Viðkvæmir hópar, þeir sem veikir eru fyrir og aldraðir, verði að halda sinni heilbrigðisþjónustu áfram.

Þórólfur taldi ekki rétt að hafa áhyggjur af smituðum kennara í Borgarholtsskóla sem DV greindi frá nú í morgun. Allir sem taldir eru þurfa hafi verið boðaðir í sóttkví.

Fólk á ferðalagi skrái sig í gagnagrunn

María Mjöll hvetur fólk sem er erlendis á ferðalagi að skrá sig í gagnagrunn Utanríkisráðuneytisins. Í þennan grunn eru nú 18 einstaklingar skráðir sem eru á ferðalagi á Ítalíu. Fólk á ferðum erlendis verði að virða fyrirmæli og aðgerðir þarlendra stjórnvalda og utanríkisráðuneytið getur lítið hlutast til um slíka stöðu. Þeir sem lendi í vandræðum geti þó haft samband við Borgaraþjónustan sem er á vakt allan sólarhringinn með því að senda póst á hjalp@utn.is eða hringja í síma 545-0112.

Á fundinum kom einnig fram að hörð fjölgun tilfella COVID-19 í Evrópu og ástandið á Norður-Ítalíu séu vissulega áhyggjuefni. Samkvæmt ónákvæmu mati sóttvarnarlæknis geti verið um 1000 Íslendingar á ferðalögum í Ölpunum. Engar sérstakar varúðarráðstafanir verða gerðar við komu þeirra til landsins, en þeir fari í sóttkví og tilkynni ef einkenni koma fram.

Staðan sé sú að tilvikum muni fjölga og fólk getur farið að  veikjast meira. Aðgerðir eru komnar í gang sem miða að því að undirbúa heilbrigðiskerfið. Kórónaveiran sé bráðsmitandi og geti lifað á yfirborði hluta allt frá nokkrum klukkutímum upp í nokkra daga.

Ekkert samgöngubann sem stendur

Samgöngubanni verður ekki beitt að svo búnu en það er þó til skoðunar og verður þá og ef sérfræðingar mæli með því. Vandasamt er að beita úrræðinu þar sem ekki má grípa til þess of snemma eða of seint. Þá mun það líklega aðeins gilda á þeim svæðum sem nauðsyn þykir á.

DeCode mun aðstoða við að skima fyrir veirunni og munu aðgerðir hefjast líklega síðar í vikunni. Þá mun vonandi vera hægt að leiða í ljós hvort samfélagssmit sé útbreiddara en talið er.

Einstaklings og samfélagsleg ábyrgð skipta sköpum í stöðunni, fremur en boð og bönn frá yfirvöldum. „Það sem skiptir mestu máli eru þessar samfélagslegu aðgerðir sem einstaklingar og fyrirtæki grípa til þar sem fólk er meðvitað um hvað á að gera í daglegu lífi. Það skiptir meira máli en boð og bönn frá yfirvöldum,“ sagði Þórólfur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar