Ingvar Árni Ingvarsson var síðastliðin föstudag dæmdur í 60 daga fangelsi í Landsrétti vegna fjölda brota. Þar má helst nefna hótanir í garð Dýralæknamiðstöðvar og innflutning á gervi-skotvopnum, piparúða og anabólískum sterum.
Ingvar hefur ítrekað komið við sögu í málum lögreglu, en hann er hvað þekktastur fyrir að vera dæmdur í stóra fíkniefnamálinu, árið 2000. Einnig var hann ákærður árið 2009 fyrir að halda sambýliskonu sinni nauðugri og slegið hana svo fast að hún féll fjóra metra, fram af svölum.
Ákæran sem borin var upp á föstudaginn var í þremur liðum, sú fyrsta varðaði hótanir hans í garð Dýralæknamiðstöðvarinnar í Grafarholti. Ingvari fannst meðferð miðstöðvarinnar á hundinum hans, Gloriu, ekki vera til sóma og birti í kjölfarið Facebook-færslu þar sem hann hótaði öllu illu.
„Það bendir allt til þess að dýraspítalinn í Grafarholti hafi sýnt vanrækslu í starfi þegar Gloria mín fór í allsherjar skoðun þar fyrir þremur vikum og ef svo er sem ég mun komast í fyrramálið, munið þið ekki sjá mig á faceinu næstu daga. Ég ætla að stúta þessum læknabeljum [með] krepptum hnúum og þungum höggum og senda 5 sprautusjúklinga til að kveikja í þessari dýraníðsholu til að bjarga hinum dýrunum. ÉG ER SVO BRJÁLAÐUR NÚNA AÐ SÉ JAILTIME FRAMUNDAN, DREP ÞETTA HELVÍTIS PAKK OG ÞAÐ Í FYRRAMÁLIÐ.“
Þá á Ingvar að hafa mætt á stofuna með boxhanska og hótað barsmíðum. Einstaklingurinn sem Ingvar á að hafa beint hótunum sínum að, virðist hafa verið veikur daginn sem Ingvar kom, og fengið að vita af bæði heimsókninni og Facebook-færslunni frá samstarfsfélugum sínum.
Þá var Ingvar dæmdur fyrir innflutning á sjö ampúlum, sem innihéldu anabólíska stera. Hann viðurkenndi að hafa flutt lyfið til landsins, án þess að hafa tilskilið leyfi til, en sú háttsemi er refsiverð.
Seinasti liður dómsins varðaði innflutning á riffli, skammbyssu, magasíni ætluðu rifflinum, tvo brúsa af piparúða og sjö pakka af skotfærum. Byssurnar voru eftirlíkingar, en ekki piparúðinn. Þá viðurkenndi Ingvar að hafa keypt púðurskot ásamt skammbyssu.
Ingvar sagðist ekki hafa skotvopnaleyfi, né einhverja reynslu af skotvopnum. Hann segist hafa keypt umræddar gervi-byssur í verslun erlendis, fengið þær pakkaðar inn og kvittun. Síðan hafi hann gengið í gegnum græna tollhliðið án nokkurs vesens.
Innflutningur á vopnum og eftirlíkingum þeirra er ólöglegur, þar sem erfitt getur þótt að greina á milli.
Líkt og áður kom fram var Ingvar dæmdur í 60 daga fangelsi, auk þess sem hann mun þurfa að greiða málsvarnarkostnað skipaðs verjenda síns, 527.000 krónur.