fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Ókunnugur maður braust inn til Kolbeins í nótt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 7. mars 2020 10:54

Kolbeinn Óttarsson Proppé

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í nótt vaknaði ég við að ókunnur maður stóð inni í svefnherberginu mínu,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, í opinni Facebook-færslu. Kolbeinn lenti í átökum við manninn er hann reyndi að koma honum út úr húsi.

Kolbeini tókst að koma manninum burtu en uppgötvaði í morgun að hann hefði komist inn um svaladyr. Frásögn hans af atvikinu er eftirfarandi:

„Í nótt vaknaði ég við að ókunnur maður stóð inni í svefnherberginu mínu. Fyrir þau sem ekki hafa reynt það get ég upplýst að hægt er að vakna á betri hátt. Ég rauk upp og rýndi í andlit hans í myrkrinu til að sjá hvort þetta væri einhver sem ég þekkti, sem reyndist sem sagt ekki vera. Ekki datt mér nú í hug í fátinu að kveikja ljósið. Venjulega býð ég gesti velkomna, en einhvern veginn fannst mér þessar aðstæður ekki kalla á slíkt, heldur þreif ég til hans og ýtti honum út úr herberginu, fram stofuna, niður stigann og út. Honum fundust móttökurnar heldur slælegar, hélt fast um síma sinn og tautaði reglulega um hvort við gætum ekki rætt málin, ástandið væri ekki gott. Hann muldrar eitthvað um hrun og grípur um pyngjuna; þessar ljóðlínur Megasar komu upp í hugann. Mér fannst aðstæðurnar ekki bjóða upp á djúpar samræður, hann klæddur, ég alls ekki, hann nýkominn af djammi, ég nývaknaður. Þegar út var komið vildi hann halda spjalli áfram, það væri fólk sem ætti erfitt með að komast inn í húsið við hliðina. Vissulega mátti heyra barsmíðar berast þaðan þar sem bankað var á hurð, en ég taldi meira um vert að fá upp úr honum hvernig hann komst inn til mín. Um það vildi hann fátt segja, annað en að lífið væri flókið. Það er vissulega rétt, en þó var ég ekki tilbúinn í innilegar samræður um það. Ályktunarhæfni mín var slík, við þessar aðstæður, að það var ekki fyrr en eftir að ég var lagstur aftur í rúmið að ég greindi að hurðin sem ég heyrði reglulega skellast aftur var svalahurðin hjá mér og kom mér í að loka henni og læsa. Svo fór ég að sofa. Í morgun blasti vettvangurinn við; sporin eftir hann á svölunum, merkjanleg för eftir blauta skó að rúminu mínu. Þetta vekur upp í mér rannsakandann og helst vil ég fara að taka gifsmót af förunum í snjónum og verða mér út um smásjá. Tilgangurinn er þó óljós. Ég vona bara að aumingja maðurinn hafi komist þangað sem hann ætlaði sér eftir að okkar fundum lauk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“