fbpx
Fimmtudagur 20.nóvember 2025
Fréttir

Una María í áfalli vegna óhugnanlegs samtals barna – Ræddu tölvuleik sem snýst um að taka portkonu af lífi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. mars 2020 15:21

Una María Óskarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrst velur þú þér port­konu til að sænga hjá, síðan velur þú um nokkrar leiðir til að taka hana af lífi.“ Þessi orð lét Una María Óskarsdóttir, þingmaður Miðflokksins, en hún var þar að vitna í samtal tveggja 9-10 ára drengja sem hún varð vitni að. Una gerði ofbeldi barna að umtalsefni í þinginu í morgun, og vefur Hringbrautar greinir frá.

Una María segir fjölmiðla oft færa almenningi fréttir af vanlíðan, heimilisofbeldi og eitulyfjaneyslu ungs fólks. Hún gerði hrottalega hópárás í Kópavogi sem var í fréttum fyrir stuttu að umtalsefni og velti upp þeirri spurningu hvort ofbeldisfull hegðun barna og unglinga ætti sér rætur í í óæskilegum fyrirmyndum. Una benti á að bíómyndir og tölvuleikir hefðu sín áhrif.

Una sagði síðan óþægilega sögu af samtali sem hún varð vitni að:

„Í gær heyrði ég sögu um níu til tíu ára drengi sem höfðu fengið að valsa greini­lega í of­beldis­tölvu­leikjum og ljótur tals­máti þeirra var farinn að berast um bekkinn. Með leyfi for­seta vil ég um­orða þau hryllings­orð sem þeir létu falla og mín orð eru þessi:

„Fyrst velur þú þér port­konu til að sænga hjá, síðan velur þú um nokkrar leiðir til að taka hana af lífi.“
Þið getið rétt í­myndað ykkur hver orðin voru í raun.“

Ræða Unu var flutt í umræðu um bætt uppeldi, leið til forvarna og lýðheilsu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Elín Edda ráðin fjármálastjóri Fastus

Elín Edda ráðin fjármálastjóri Fastus
Fréttir
Í gær

Anna breytti þessu eftir að hún kom að alvarlegu bílslysi – „Ég lærði af reynslunni“

Anna breytti þessu eftir að hún kom að alvarlegu bílslysi – „Ég lærði af reynslunni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja Trump hafa neyðst til að taka u-beygju varðandi Epstein-skjölin en sé alls ekki sáttur

Segja Trump hafa neyðst til að taka u-beygju varðandi Epstein-skjölin en sé alls ekki sáttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

FÍF boðar til yfirvinnubanns

FÍF boðar til yfirvinnubanns