fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

COVID-sýktur maður kveður niður orðróm um Hagkaupsferðir – „Ég bið fólk að vera ekki með rógburð“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. mars 2020 13:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur karlmaður sem er sýktur af COVID-19 veirunni biður almenning um að hætta slúðri um sig. Í stöðufærslu á Facebook biður hann vini sína um að bera ekki á borð sögur um að hann hafi farið í Hagkaup eða sund, líkt og hann nefnir. Maðurinn baðst undan að tjá sig nánar um málið í samtali við DV.

Hann segist þurfa að biðja vini og vandamenn um þetta að gefnu tilefni. Hann hafi verið í sóttkví heima hjá sér vegna veirunnar og sögur um ferðir hans meðal almennings séu uppspuni frá rótum. Hann segist þó skilja slíkar sögusagnir í ljósi ástandsins en biðlar til fólks að halda ró sinni og sverta ekki mannorð þeirra sem eru sýktir.

Átta Kórónuveirusmit hafa greinst hér á landi í dag. Fjöldi smitaðra Íslendinga er því kominn upp í 34. Öll tilfellin eru rakin til ferða Íslendinga til Norður-Ítalíu og Austurríkis. Íslensk stjórnvöld hafa gripið til hnitmiðaðra varúðarráðstafana til að koma í veg fyrir víðtæka útbreiðslu COVID-19-veirunnar. Engin smit hafa greinst sem rekja má til innlendra smitleiða.

Í fréttatilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavörnum í gær var ítrekað mikilvægi þess að  fólk sem hefur verið á skilgreindum hættusvæðum virði ráðleggingar um sóttkví, en í þeim felst að forðast samneyti við aðra einstaklinga í 14 daga. Á mannamótum er einkar mikilvægt að til staðar sé aðstaða fyrir handþvott og handsprittun. Mælst er til að fólk noti aðrar kveðjur en handaband og faðmlög.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust