Brynjar Þór Björnsson, einn lykilmanna í margföldu meistaraliði KR í körfubolta, ætlar ekki að spila leik gegn Stjörnunni í DHL-höllinni í KR-heimilinu á föstudagskvöld. Ástæðan er COVID-19 veiran. „Þetta er bara mín persónulega ákvörðun,“ segir Brynjar í viðtali við DV.
„Af virðingu við náungann vil ég sporna gegn útbreiðslu veirunnar og þetta er mitt framlag til þess. Mér fyndist að við ættum öll að sjá til hvernig veiran þróast næstu daga áður en fólk er að koma saman á stórum samkomum eins og körfuboltaleikjum. Þetta er rosalegt stökk, við förum frá 20 og upp í 34 smitaða á einum degi.“
Brynjar viðurkennir að ákvörðunin hafi mælst misjafnlega fyrir. „Sumir styðja þetta og segja að þetta sé það eina skynsamlega í stöðunni en sumum finnst þetta skrýtið.“
Brynjar segir að engar sérstakar persónulegar ástæður séu fyrir ákvörðuninni. „Ég hef verið hraustur alla ævi og aldrei þurft að leita á spítala. Þannig að þetta tengist ekki neinu slíku. Varðandi mína nánustu þá er þetta bara eins og hjá öðrum, ég á aldraða ömmu og foreldrar mínir eru að nálgast sjötgut.“
Brynjar birti eftirfarandi tilkynningu um málið á Facebook-síðu sinni:
Í ljósi frétta af Covid-19 hef ég ákveðið að spila ekki á morgun þegar leikur KR og Stjörnunnar fer fram. Ég tel óskynsamlegt að mæta á jafn fjölmennan stað og DHL-Höllin mun vera annað kvöld. Við erum að glíma við mjög alvarlegan smitsjúkdóm á Íslandi og það er líklega hægt að draga úr útbreiðslu hans með réttum aðgerðum. Með því að forðast hópsamkomur á meðan óvissuástandi ríkir þá gæti það skipt sköpum að bregðast við strax. Flestir sem veikjast alvarlega gera það ekki fyrr en eftir 10-14 daga veikindi svo við erum ekki farin að sjá rétta mynd enn. Ég skora á íþróttahreyfinguna að taka fyrirtæki í landinu sér til fyrirmyndar og fresta hópsamkomum á meðan óvissuástand ríkir.
Brynjar Þór Björnsson
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, er ósáttur við ákvörðun Brynjars og segir í víðtali við Vísir.is:
„Þetta er eitthvað sem ég er því miður ekki sáttur við og mér finnst hann hafa hlaupið á sig í þessum efnum. Ég ítreka það að sérsamböndin eru í sambandi við yfirvöld og það er þeirra að ákveða hvort leikir fari fram eða ekki,“ sagði Böðvar.