Davíð Jón nokkur greinir frá því innan Facebook-hópsins Costco-Gleði að hann hafi verið að bugast því honum klæjaði svo agalega í rassgatið. Hann segist hafa farið til læknis og þá hafi hann sagt honum að þetta væri algengt meðal þeirra sem nota Kirkland klósettpappír. Í fljótu bragði myndu margir ætla að þetta hafi verið grín hjá Davíð en fjöldi fólks segist þekkja þetta á eigin skinni.
„Veit ekki hvort þetta eigi við hér en langaði að athuga hvort einhverjir finni fyrir kláða í rassgati eftir að hafa notað klósettpappírinn frá Costco? Ég leitaði til læknis nú fyrr í vikunni vegna þess að mig klæjaði svo agalega í rassgatið, hélt ég væri kominn með njálg. Læknirinn spurði mig hvort ég væri búinn að vera að nota Kirkland WCpappírinn úr Costco sem ég játaði. Hann leiðbeindi mér um að nota hann ekki lengur þar sem í honum er mikið af ilmefnum sem erta og geta valdið gífurlegum kláða í endaþarmi og/eða leggöngum. Hafa fleiri en ég verið að lenda í þessu?,“ spyr Davíð.
Þorri þeirra sem skrifa athugasemd við færsluna segjast kannast við þetta. „Já það gerðist á mínu heimili, mikil óþægindi og ofnæmi þangað til ég fattaði þetta kaupi núna hinn pappírinn,“ segir ein kona. Önnur kona efast þó um frásögn Davíðs. „Allir á þessu heimili nota kirkland og eru með tandurhreina og fína ilmandi rassa.“
Sumar konur segjast svo hafa fengið sveppasýkingu á kynfærasvæði vegna pappírsins alræmda. „Hafa líka verið þónokkur tilfelli af því að konur eru að fá sveppó á kynfærasvæðið eftir að nota hann,“ segir ein kona og önnur tekur undir: „Ég hef aldrei verslað hann en ég veit um tilfelli þar sem hann skapaði kláða í leggöngum engin lygi er að segja satt, ég var aðvöruð því ég er mjög viðkvæm sjálf ekki sama hvað ég nota.“
Einn karl segir þetta vöru sem sé framleidd fyrir ákveðin markaðssvæði. „Öll erum við misjafnlega viðkvæm og þessi vara er framleidd fyrir markaðssvæði þar sem áherslan er lögð á útlit og angan, og hugsanleg ofnæmisáhrif og umhverfisáhrif eru mjög aftarlega á merinni einsog einhvertímann gæti hafa verið sagt. Þarna er öll áhersla á neyslu og meiri neyslu en hvorki hugsað til framtíðar eða umhverfisáhrifa. Sorrý, rata út og endurnýjaði ekki kortið mitt, en þeir eiga þakkir skildar fyrir lækkun á eldsneytisverði og á ýmsum vörutegundum þó maður hafi vonast eftir meiri og nútímalegri áhrifum. Takk.“